Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1973, Blaðsíða 5

Freyr - 01.10.1973, Blaðsíða 5
FREYR BÚNADARBLAÐ Nr. 19-20, október 1973 69. órgangur Útgefendur: BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS STÉTTARSAMBAND BÆNDA Útgófustjórn: EINAR ÓLAFSSON HALLDÓR PÁLSSON PÁLMI EINARSSON Ritstjórn: GÍSLI KRISTJÁNSSON (ábyrgðarmaður) ÓLI VALUR HANSSON Heimilisfang: BÆNDAHÖLLIN, REYKJAVÍK PÓSTHÓLF 7080, REYKJAVÍK Askriftarverð kr. 400 árgangurinn Ritstiórn, innheimta, afgreiðsla og auglýsingar: Bœndahollinni, Reykjavík — Sími 19200 Ríkisprentsmiðjan Gutenberg Reykjavík — Sími 38740 EFNI: Betri umgengni Heimilisfrœðsla Kreisting laxfiska Sauðnautabúskapur Nythœstu kýr Búfé og fóður Halldóra Bjarnadóttir 100 ára Garðyrkjusérfrœðingur Útlönd Molar Betri umgengni Það hejur löngum verið Ijóður á okkur íslendingum, hversu við virðumst haja lagt lítið upp úr því að temja okkur góðar umgengnisvenjur og snyrtimennsku og að hirða vel um þau verðmæti, sem ajlast og skapast. Merki um þetta skeytingarleysi blasa við hvarvetna á athajnasvœðum okkar, við húsakynni okkar og önnur mannvirki. Þar gejur að líta allt oj mikla óreglu og ó- þrijnað. Hér er um sannkallaða ómenningu að rœða, sem er ekki síður jyrir hendi úti á landsbyggðinni en í þétt- býlinu. Við mörg sveitabýlin úir og grúir aj allskonar rusli og ósóma, sem einna helst má líkja við reka á jjöru. Slíkt ríkjandi umhyggjuleysi samrœmist illa hinni marg- rómuðu 11 alda bændamenningu landsins, sem minnst verður að ári. Á þessum atriðum vakti einn ráðunautur athygli bænda jyrir nokkru, í hinu vikulega morgunspjalli út- varpsins, er hann vék að velheppnaðri bændajör til Nor- egs og Danmerkur jyrr á sumrinu. Kvað hann jlesta þátttakendur haja hrijist aj, hversu umgengni hejði hvarvetna verið góð við þau sveitabýli, sem heimsótt voru, og reglusemi á öllum hlutum. Nú skal það tekið jram, að þótt mál þessi séu hér víða í ójremdarástandi, þá eru, sem betur jer, undantekn- ingar jrá reglunni. Til eru mörg býli, já allt að því heilar sveitir, þar sem reglusemi og þrijnaður er, eins og bezt verður á kosið. Sumstaðar virðist þetta haja verið svo jrá jyrstu tíð, á öðrum stöðum haja menn vaknað til með- vitundar hin síðari ár. Þetta má ugglaust þakka þeim búnaðarsamtökum, og annari jélagslegri jramtakssemi, sem jarið haja inn á þá braut upp á síðkastið, að veita árlegar viðurkenningar jyrir það, sem vel hejur áunnist á þessu sviði. Mœttu því sem jlest jélagssamtök dreij- býlisins hlúa að þessari stejnu og halda henni vakandi. Að mála hús í björtum og kætandi litum, hvað mikið hejur verið gert á býlum landsins hin síðari ár, er spor í rétta átt og ber að jagna, en það þarj vissulega að gera meira. Hreinsa til og koma jastmótaðri reglu á allt. Slíkt bætir mannlíjið! Ó.V.H. F R E Y R 431

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.