Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1973, Blaðsíða 35

Freyr - 01.10.1973, Blaðsíða 35
Búfé og fóður 1970 - 1972 Þær eru bæði fróðlegar og til margra þarfa nauð- synlegar skýrslurnar, sem Hagstofa íslands sendir frá sér í Hagtíðindum. Meðal þeirra er skýrslan yfir búfé og fóðuröflun hvers árs. Hún er gerð eftir skýrslum forðagæzlumanna, en þeir vinna á vegum sveitarstjórna að talningu búfjár og mæl- ingu fóðurforða árlega. Á opnunni hér á eftir birtist skýrslan fyrir árið 1972, samkvæmt talningu og mælingu snemma á síðasta vetri og þar eru einnig tölurnar yfir hlið- stæða hluti frá árunum 1971 og 1970. Á yfirlitinu má sjá, að á árinu 1972 hefur búfé fjölgað verulega frá árinu áður, nautpeningi um nálægt 6000, sauðfé rúmlega 42 þúsund og hrossum um 2500. Af töflunni má lesa tölurnar frá ári til árs. Magn þurrheys var á árinu 1972 um 500.000 m’ meira en árið áður, votheysmagnið um 15% meira en 1971, en útheysmagnið aðeins um 20.000 rúm- metrar eða að fóðurgildi aðeins brot úr % af öllu heimaöfluðu fóðri. Þess ber að geta hér, að þótt rúmmetrafjöldi þurrheys væri verulega meiri 1972 en árið áður (um 14%) var fóðurgildi þess miklu minna en 1971 í vissum landshlutum, er aftur hefur þau áhrif, að reiknað fóðurgildi 1971 og 1972 hefur ekki verið mismikið samanlagt. Sé litið á þessi tvö ár og fundinn samnefnari fyrir allt fóðrið, — en það er fóðureiningin — fer varla fjarri að þetta magn hafi verið: F.E. í m3 F.E. í mJ 1971 1972 Þurrhey 55 50 Úthey 45 40 Vothey 100 100 Þegar svo teningsmetratalan er margfölduð með þessum gildum og útkomurnar lagðar saman fyrir hvort árið, verður heildartalan sú, að á árinu 1972 hafi fóðurfengurinn numið 185,5 milljónum F.E. en 184,9 árið áður. Með öðrum orðum, munurinn var lítill en rúmmálið þó miklu meira 1972 en árið áður. Óþurrkarnir á Suður- og Suðvesturlandi sumarið 1972 áttu sök á næsta takmörkuðu fóður- gildi. Mismunur milli ára var í þeim efnum miklu minni norðan og austan lands. BÆWUR! Vér útvegum fró LEROY - SOMER í Frakklandi, traktorknúðar vararafstöðvar Stœrðir: 10 kvA fyrir 30 ha traktora 15 kvA fyrir 45 ha traktora 20 kvA fyrir 50 ha traktora ÓÐINN s.f. Keflavík Símar 92 25 30 og 92 23 33 461 L

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.