Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1973, Blaðsíða 8

Freyr - 01.10.1973, Blaðsíða 8
væla. Þar hefur orðið bylting, en til þess að hægt sé að notfæra sér frystitæknina þarf kunnáttu, ef hún á að koma að fullum notum. Það er leitt til þess að vita hversu handahófsleg vinnubrögð eru í þessum efnum á mörgum heimilum. í meðferð hreinsiefna þarf að hafa vak- andi auga, og þar eru skólarnir vel á verði. Alltaf koma ný og ný efni til fatagerðar á markaðinn, og krefjast þau mismunandi hreinsiaðferða. Það er blátt áfram þjóðar- nauðsyn að rétt sé á málum haldið, því miklir fjármunir fara í súginn daglega fyr- ir sakir vankunnáttu. Það þarf ekki lengi að skyggnast í kringum sig til að sjá eyði- legginguna: Illa og rangt þvegnar peysur, buxur, sem eyðilagðar eru í fyrsta þvotti, að ég nú ekki tali um barnafatnaðinn, og svona mætti lengi telja. Það er dýrt fyrir heimilið ef húsmóðirin kann ekki til verka! Það liggur nokkurnveginn ljóst fyrir, að húsmæðraskólarnir eru of margir í land- inu. Það kemur sérstaklega fram um þess- ar mundir, þegar ýmsar nýjar leiðir eru að opnast í skólakerfinu, og fleiri tæki- færi skapast fyrir þá aldursflokka, sem einkum sækja þessa skóla. Þá vaknar sú spurning, hvað eigi að gera við húsmæðra- skólana. Allir eiga skólarnir sér merkilega sögu, er skráð verður sem samstæður þáttur hjá kvenfélögum þessa lands, en í flestum til- fellum hafa þau hrundið þeim af stað, og ætíð stutt dyggilega við bakið á þeim. í mörgum sýslum og bæjum þessa lands hef- ur stafað ljóma af húsmæðraskólunum. Þeir hafa verið hollir menningarreitir fyrir ungar stúlkur, og haft heillavænleg áhrif á umhverfi sín. Hvað kemur í staðinn? Ég held að við séum að komast í strand í öllu þessu kapp- hlaupi. Við erum ráðvillt. Mér finnst sem gengið sé á einstaklingseðlið, allir eiga að vera steyptir í sama móti, og allir eiga að glíma við sömu vandamálin, þótt eðlið og upplagið sé gerólíkt. Unga konan þarf að vinna úti af því að konan í næsta húsi gerir það! Maður tekur við nýjungum af hugrekki og bjartsýni og ýtir frá sér gömlum verð- mætum í þeirri von, að hið nýja boði betri hag og fegurra líf. Við stöndum ótvírætt á vegamótum, en við vitum ekki hver leið- in liggur til hins betra heims, sem allir þrá. En vonandi vísar áttavitinn okkur rétta leið. 434 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.