Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1973, Blaðsíða 18

Freyr - 01.10.1973, Blaðsíða 18
Eldi laxfiska er viðfangsefni, sem margir hugleiða um þessar mundir. Hér eru Sveinn Jónsson á Egilsstöðum, Þór Guðjónsson, veiðimálastjóri og Gísli Kristjánsson, ritstjóri, að virða fyrir sér laxa- seiði í Eldisstöðinni í Kollafirði. að fylgjast með þeim og tína úr dauð hrogn þegar þau stjást. Einnig má hreyfa skúffurnar lítillega á nokkra daga fresti til að losna við leir, sem stundum sezt á hrognin og einnig til að losa hrognin hvert frá öðru. Leggja verður mikla áherzlu á það að hrogn eru viðkvæm fyrir ýmsum efnum og málmum, svo sem eir og zinki. Ber því að forðast zink og eirhúðaða málma í klak- skúffum og skápum eða mála þá með sér- stöku óuppleysanlegu lakki (asphalt lakk — special grade). Einnig ber að forðast galvaniseraðar pípur og eirhúðaða krana. Yfirlit um meðferð Hér fer á eftir yfirlit um meðferð hrogna á hinum ýmsu þróunarstigum: 1. Við kreistingu — meðhöndluð. 2. Meðan á vatnshörðnun stendur (1 klst.) — ekki meðhöndluð. 3. I 3 sólarhringa eftir vatnshörðnun — meðhöndluð. 4. Á augnhrognastigi — hrist og með- höndluð. 5. Viku fyrir klak — meðhöndlun hætt. Heimildarrit Davis H. S. 1965. Culture and Diseases of Game Fishes, Univ. of Cal. press 332 S. Leitritz Earl 1959. Trout and Salmon Culture. Cal. Fish. Game Fish. Bull. No. 107, 169 S. Rasmussen C. J. 1967. Handbog i Örredopdræt. Rhodos Int. S'ci. Publ. Copenhagen. Persónulegar upplýsingar. 444 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.