Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1973, Blaðsíða 39

Freyr - 01.10.1973, Blaðsíða 39
HULDA Á. STEFÁNSDÓTTIR Halldóra Bjarnadótlir 100 óra Aldrei hefur það skeð fyrr en nú og hvenær verður það næst, sem heiðursfélagi Búnað- arfé’ags íslands verður 100 ára? Halldóra Bjarnadóttir er þar fyrst, af því tilefni er hér varið meira rúmi en venja er þegar greint er frá ævistarfi einstaklings. Ritstj. Það var skýrt frá því í blöðunum, um jólin s. 1. vetur, að Halldóra okkar Bjarnadóttir lifði nú hundruðustu jólin sín. Margir ráku upp stór augu, og efuðust um að það gæti verið satt. Hún Halldóra, sem sífellt var að skrifa í blöðin og senda ungum og gömlum hvatningarorð, full af velvilja og hug- sjónaeldi. Konan, sem um langan aldur hefur barizt fyrir málefnum heimilanna og húsmæðr- anna í Iandinu og reynt að opna augu allra lands- manna fyrir mikilvægi heimilisins, þessa smáríkis í ríkinu, sem hún telur grundvöll þjóðfélagsins. Hún bendir oft á, að gott heimili sé sá bezti sjóður, sem hver tími skilar af sér sem arfi til framtíðar- innar. „Rótarslitinn visnar vísir“. I>ví er nauðsyn- legt, segir Halldóra, að gera allt sem í okkar valdi stendur til að tengja kynslóðirnar sem traustustum böndum, svo sem minnst fari úr skorðum: Ríka áherzlu hefur hún lagt á að viðhalda glóðinni á arni gömlu heimilanna. Taka verði öskuna og skara í eldinn svo birtan af honum lýsi okkur meðan við fetum inn í nútíð og framtíð og geri okkur kleift að greina kjarnann frá hisminu í hvert sinn, er að því kemur að velja og hafna. Uppruni. Þó að við eigum bágt með að trúa verður því ekki á móti mælt, að þessi merkilega kona er 100 ára nú um miðjan október. Fullyrt er að hún sé fædd að Ási í Vatnsdal, A.-Hún. þ. 14. október 1873. Foreldrar hennar voru Björg Jónsdóttir frá Háa- gerði á Skagaströnd, góð kona og merk, og Bjarni Jónasson, bónda í Ási Guðmundssonar. A landnámsjörðinni Hofi man Halldóra fyrst eftir sér og við þann stað eru flestar bernsku- minningar bundnar. Hún ann heimili sínu og sveit- inni allri. Veturinn 1882—’83 er kvennaskóli Hún- vetninga á Hofi, henni leikur forvitni á að fylgjast með því, sem fram fer í skólanum og lærdóms- Iöngun hennar er vakin. I skólanum á Hofi tekur hún fyrstu nálsporin, saumar litla mynd með skóla- stúlkunum, þá 9 ára. Vorið, sem skóla er slitið á Hofi, yfirgefur hún með trega dalinn sinn og fer með móður sinni til Reykjavíkur. Menntabrautin. í höfuðstaðnum gengur hún í Barnaskóla Reykja- víkur og lýkur þaðan prófi með Iofi. Eftir það fær hún tímakennslu og 17 ára gerist hún heimilis- kennari eða farkennari norður í landi. Hún kenndi ekki einungis börnunum á bæjunum, heldur vinnu- fólkinu líka. Eftir 5 ára farkennslu fór Ilalldóra F R E Y R 465

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.