Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1973, Blaðsíða 15

Freyr - 01.10.1973, Blaðsíða 15
ig er æskilegt að lítra mæling og þver- málsmæling hrognanna fari fram á sama tíma, því rúmtak hrognanna breytist á þróunarskeiðinu, einkum þó við vatns- hörðnun. Getur rúmmálið þá aukizt 10— 20%. Klak og klakvatn Algengast er að klekja út hrognum hér á landi við 4°C vatnshita. Ástæðan er sú, að þetta er hitastig flestra linda á íslandi, og æskilegt er að nota lindarvatn við klak, sökum hreinleika og hins jafna hitastigs. Hrognadauði er ekki mikill við 4°C, en klakið gengur fremur hægt fyrir sig, og má reikna með því, að laxahrogn klekist út á 450 gráðudögum eða 110—15 dögum við það hitastig. Einn gráðudagur jafn- gildir einum degi við 1°C vatnshita. Hins vegar mætti klekja út á 50 dögum við 10°C, sem er þó óeðlilega hár hiti fyrir Atlants- hafslax. Mjög lítið vatnsrennsli þarf til klaksins. Sem dæmi má nefna að hægt er að klekja út 1 milljón hrogna með 3 mínútu-lítrum. Samt skal ekki sparað vatn að nauðsynja- lausu. Ekki er ósanngjarnt að reikna með einum mínútu-lítra á hverja klakskúffu. Þannig yrði rennslið í klakstokk með 10 skúffum um 10 mínútu-lítrar. Vatnsrennsli má heldur ekki vera of mikið, því þá geta hrognin orðið fyrir hnjaski á viðkvæma tímabilinu, sem getur valdið miklum hrognadauða. Umhirða hrognanna Mjög strangar reglur gilda um meðferð hrogna, og ber að hlýða þeim skilyrðis- laust, ef vel á að vera. Leyfilegt er að hreyfa hrognin fyrstu 2—3 dagana. Eftir það þarf að gæta mestu varúðar í meðferð þeirra fram að augnhrognastigi. Reynslan í Eldisstöðinni í Kollafirði hefur þó sýnt, að hrognin skaðast ekki, þó að klakskúff- urnar séu hreyfðar á þessu viðkvæma stigi. Ef skúffunum er lyft niðri í vatninu annan hvern dag, losna hrognin hvert frá öðru, sem kemur í veg fyrir að sveppamotta nái að myndast, þótt eitthvað sé af dauðum hrognum í skúffunni. Ef tínsla fer fram á þessu tímabili, verður hún að ske með hrognin niðri í vatninu, og gæta þarf þess að snerta ekki lifandi hrogn. Á augnhrognastiginu, sem kemur þegar um það bil helmingur klaktímans er lið- inn, má sjá móta fyrir tveimur dökkum dílum, sem eru upphaf augna í fóstrinu. Á þessu stigi hefur fósturhimnan breitt sig alveg yfir kviðpokahimnuna, og eru því hrognin ekki eins viðkvæm og áður. Þegar hrognin hafa náð þessu stigi, eru þau hrist. Hristun felst í því, að hrognin eru látin verða fyrir hnjaski, svo að ófrjóvguð hrogn verða hvít. Hægt er að gera þetta með því að hræra í þeim með hendinni, en betra er að dæla hrognunum með sogkrafti í gegnum slöngu úr klakskúffunum í fötu sem stendur á gólfinu. Síðan er hrognun- um hellt aftur í klakskúffurnar. Rétt er að benda á að hristun má aldrei fram- kvæma á hrognum nema þeim sem komin eru vel á augnhrognastigið. Hrognatínsla Á augnhrognastiginu eru öll dauð hrogn tínd úr skúffunni. Þetta er oft gert með sogkrafti gegnum glerpípu og mjóa slöngu. Er glerpípan á þeim enda, sem tínt er með. Soginu má stjórna með því að klemma saman gúmmíslönguna með fingrum vinstri handar, en nota hægri hendi við tínsluna. Einnig má tína með þar til gerðri málmpinsettu. í sumum klakstöðvum fer engin hrogna- tínsla fram, heldur eru hrognin böðuð dag- lega með malakít-grænu, allt frá kreistingu til útklakningar. Malakít-græna heldur sveppagróðri í skefjum, en sveppagróður er einn algengasti skaðvaldur í hrognum. Ekki er hægt að mæla með þessari aðferð, þar sem margir álíta, að of mikil malakít- græna veiki hrognin. Varðandi notkun malakít-grænu vísast til skýrslu frá Veiði- F R E Y R 441

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.