Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1973, Blaðsíða 10

Freyr - 01.10.1973, Blaðsíða 10
JAKOBÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR vefnaðarkennari: Nokkur orð um vefnaðarkennslu í húsmæðraskólum Síðan húsmæðraskólarnir tóku til starfa hér á landi, hefur verið kenndur vefnaður í þeim. Má fullyrða, að þessi námsgrein njóti verulegra vinsælda. Áhugi nemenda hefur löngum beinzt að því að vefa muni, eins og mottur, áklæði, púða, veggstykki, dúka og refla ýmis konar, til að fegra heimili sín með, því margar af námsmeyj- um húsmæðraskólanna eru stúlkur, sem farnar eru að huga til heimilisstofnunar. Mjög er mismunandi í hinum ýmsu skól- um, hversu mikil áherzla er lögð á að kenna nemendum uppsetningu vefja- og bindifræði, þannig, að þær gætu einar og hjálparlaust sett upp í vef síðar. Það má segja, að vefnaðarkennslan sé í mjög frjálsu formi, og fer það nokkuð eftir kennurum á hverjum stað, svo og áhuga nemenda, hvernig kennslan er fram- kvæmd. Þó eru ákveðnar vefnaðargerðir, sem skylt er að kenna. Auk þess að öðlast almenna þekkingu á vefnaði og sögu hans í íslenzku þjóðlífi, fá nemendur í vefnað- arkennslunni góða þekkingu á vefjarefn- um. Þau efni, sem einkum er ofið úr, eru hin sígildu, náttúrulegu vefjarefni, baðm- ull, hör og síðast en ekki sízt ull. Með vefnaðarkennslunni gefst mjög gott tæki- færi til að vekja réttmætt mat á íslenzku ullinni, kynna gildi hennar fyrir þjóðina í gegnum aldirnar, svo og hvernig nútím- inn getur nýtt hina margvíslegu, verðmætu eiginleika hennar. Annað, sem mikil áherzla er lögð á í þessari kennslu, er form og litaval, og þar með að þroska fegurðarskyn nemenda, og einnig að ýta undir tjáningar- og sköpun- argleði þeirra. Hefur það orðið til þess, að margar hafa haldið áfram vefnaðarnámi í öðrum skólum eða á námskeiðum. Það er mjög ánægjulegt að kenna vefn- að, og eitt er víst, að hins margumtalaða námsleiða verður þar lítt eða ekki vart hjá nemendum. 436 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.