Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1973, Blaðsíða 46

Freyr - 01.10.1973, Blaðsíða 46
M°L AR AOalfundur Stéttarsambands bænda var háður á Núpi í Dýra- firði 31. ágúst og 1. sept. Frá fundinum verður sagt í næsta hefti FREYs. Þess má geta hér, að aldrei fyrr hafa svo margar konur mætt sem gestir aðalfundar sem í þetta sinn. Metdilkar Ásgeir Þ. Ólafsson, dýralæknir, hefur tjáð FREY, að haustið 1971 hafi komið í sláturhús í Borgarnesi sérlega vænir dilkar sem hér segir: Tvílembingar frá Tröðum í Hraunhreppi með 26,2 og 28,2 kg föll, eða 54,4 kg samtals. Móðirin var 6 vetra og hafði í upphafi verið heimaalningur. Frá Þórgautsstöðum kom þá einnig dilkur, ein- lembingur, með 35 9 kg fall. Hann var borinn í heiminn 20. apríl. Móðir hans hafði einnig verið heimagangur. Holdagripafjós líklega hið stærsta um Norðurlönd, hefur bóndi nokkur við Hobro á Jótlandi verið að byggja og er það að komast í notkun. Það er 137 m á lengd og breidd þess er 23 metrar. Sperrur þess eru úr stáli en þakið álplötur. Rimlagólf er í fjósinu og vatnsskolun flytur mykjuna út. Svo er sagt, að fjósið kosti um eina milljón danskra króna (15—16 millj. íslenzkar) en þar er líka gert ráð fyrir að selja afurðir árlega fyrir þrisvar — fjórum sinnum stofnkostnaðinn. í fjósinu geta verið 600—700 gripir — eftir stærð þeirra misjafnlega margir. Fóðrun og brynning er að mestu framkvæmt með sjá’fvirkri tækni. Bónd- inn hefur til fóðrunar á komandi vetri keypt 350 tonn grasköggla á SHELL-búi því, sem um var getið í septemberhefti FREYs í ár. Ætlunin er að þurfa ekki að fóðra á sunnudögum. Nýfæddur kálfur þarf nauðsynlega að fá að sjúga móður sína fyrsta sólarhringinn eða að fá broddmjólk hennar úr pela ef hann vill ekki sjúga. Ástæðan er sú, að í fyrstu broddmjóikinni er mjög mikið af efni því, sem heitir gammaglobulin, en því fylgir mikið af varnarefnum þeim, sem finnast í blóði kýr- innar og verða að komasi. í meltingarfæri kálfs- ins til þess að færast yfir í blóð hans, en það getur aðeins skeð fyrsta sólarhringinn, sem hann lifir. Hversvegna er ekki vitað, og hitt er ekki heldur vitað hvernig því víkur við, að gammaglóbulínið kemst ekki með blóðrás móðurinnar til fóstursins um meðgöngutímann, en svona er það. Kjötneyzla í heiminum er talin ört vaxandi, meðfram vegna þverrandi fisks á markaði. Einnig er efnahagur víða batn- andi svo að fó'k hefur efni á að kaupa kjöt, en próteinskortur hefur ríkt víða og gerir það raunar enn. Sem dæmi um aukna neyzlu kjöts í Evrópu er betnt á Italíu. Þar var árleg kjötneyzla á mann 33,5 kg fyrir 10 árum, en er nú 55,5 kg. í Sviss og Bretlandi er kjötneyzla 73 kg, í Belgíu 80 kg og í Frakklandi 95 kg á mann árlega, að meðaltali. Líklega borðum við íslendingar ekki nema svo sem 70—80 kg á mann um árið, en við neytum Hka fisks í ríkum mæli. Hvert er rcrunverulegt ver8 dráttarvéla? Fjárfesting hvers bónda nemur hárri upp- hæð. Hún skiptir milljónum króna, þótt ein- ungis sé lítill hluti þeirrar upphæSar viðuf- kenndur á verðlagsgrundvelli. Miklu skiptir því, að fjárfestingarfé sé vel varið. Hygginn bóndi velur þær vélar og þau tæki, sem endanlega skila húi hans mestum arði. Upp- haflegt kaupverð dráttarvélar er t.d. einung- is einn þáttur þess, sem hyggja þarf að við val hennar. Væntanleg ending er annar. Við- haldskostnaður þriðji. Rekstraröryggi vélar- innar byggist bæði á því hve vönduð drátt- arvélin er og hve góða varahlutaþjónustu umboðsmenn bjóða. Rekstraröryggi er e. t. v. fjórði þátturinn. Sá fimmti, sem nefna má, er notagildi vegna tæknilegs búnaðar. Sjötti þátturinn er væntanlegt endursöluverð vél- arinnar. Sé það hátt, auðveldar það bóndan- um leikinn næst þegar hann vill endurnýja. Þættirnir eru fleiri og hverjum hagsýnum bónda vel Ijósir. Þeir eru einnig vel ljósir framleiðendum Massey Ferguson dráttarvél- anna. Þessir þættir og aðrir af sama toga móta gerð vélanna. Hinn mikli fjöldi þeirra á íslandi ber vott um hagsýni íslenzkra bænda. SJÁ FORSÍÐU 472 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.