Freyr - 01.02.1976, Qupperneq 10
ÓLAFUR E. STEFÁNSSON:
Af 21017 kúm, sem afurðaskýrslur voru haldnar yfir á
vegum nautgriparæktarfélaga árið 1974, mjólkuðu 1727*
200 kg mjólkurfitu eða yfir, sem er 19 kúm færra en
árið 1973. Þetta er lítil lækkun tölulega séð, en taka ber
þó tillit til þess, að árið 1974 voru á skýrslum 1745
fleiri kýr en árið á undan, og hefur því orðið nokkur
hlutfallsleg lækkun á fjölda kúa í þessum háa afurða-
flokki. Næstu tvö ár þar á undan voru einnig fleiri kýr í
þessum flokki, þ.e. 1996 árið 1972 og 1829 árið 1971.
Fyrir þann tíma varð tala þeirra hæst 1209 árið 1970.
Innbyrðis flokkast afurðahæstu kýrnar þannig árið
1974 eftir afköstum:
300 kg mjólkurfita og yfir 28kýr
290 til 299 kg mjólkurfita 12 —
280 — 289 — — 26 —
270 — 279 — 31 —
260 — 269 — — 54 —
250 — 259 — — 95 —
240 — 249 — — 124 —
230 — 239 — — 181 —
220 — 229 — — 268 —
210 — 219 — — 405 —
200 — 209 — — 503 —
Nythæstu
kýr
nautgripa-
ræktar-
félaganna
árifi 1974
Tala kúa, sem mjólkuðu 250 kg mjólkurfitu eða meira,
er birt í töflu I. Eru þær 246 talsins, sem er 5 fleiri en
árið 1973. Kúm, sem mjólkuðu minnst 300 kg mjólkur-
fitu, fjölgaði um 10 frá árinu áður. í töflu II eru skráðar
kýr, sem mjólkuðu 230—249 kg mjólkurfitu og minnst
5500 kg mjólkur. Eru þær 127, en voru 112 árið á undan.
Enn er Eyjafjörður (S.N.E.) með langflestar kýr, sem
mjólka 200 kg mjólkurfitu og yfir (þ.e. 20.000 fitueiningar
og yfir við samanburð fyrri skýrslna). Eru þær nú 804 á
sambandssvæðinu á móti 830 árið áður, en flestar urðu
þær árið 1972, þ.e. 1061. Næst í röðinni er Árnessýsla
með 265 kýr í stað 272 árið áður og þar næst starfs-
svæði Bsb. Suður-Þingeyinga með 167 í stað 186. Þá
kemur Nsb. Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu með
126 kýr í stað 140. í Borgarfirði eru að þessu sinni 120
kýr í hópnum í stað 85, og er þar um verulega fjölgun
að ræða. í Skagafirði fjölgar enn kúm í þessum afurða-
flokki, en hægar en áður, og eru nú 91 í stað 83 árið
áður. Röð þessara 6 efstu sambanda hefur nú verið
óbreytt í þrjú ár. Næst er að þessu sinni Snæfellsnes
með 43 kýr í stað 20 árið 1973 og 30 árið 1972, og er
* Leiðrétt tala, sbr. bls. 158 1975.
38
F R E Y R