Freyr - 15.05.1977, Side 10
ar, sem reynsla er af, að séu mjög góðir
við íslenskar aðstæður. í öðrum flokki,
reyndir stofnar, eru stofnar, sem hér hafa
verið reyndir en skara ekki fram úr á neinn
hátt. Yfirleitt eru þessir stofnar það skásta,
sem völ er á af viðkomandi tegund. Stund-
um hafa fræinnflytjendur ekki fengið það
besta eða ekki nægilega mikið fræ af bestu
stofnum og verða þá að grípa til þess, sem
lakara er talið en samt vel brúklegt. í þriðja
flokki, óreyndir stofnar, eru stofnar, sem
ekki hafa verið reyndir hér enn. Sumir eru
nýir stofnar, sem lofa góðu. Þeir hafa verið
reyndir erlendis og verið þar sambærilegir
við gamla og góða stofna. En hinu er ekki
að leyna, að óreyndu stofnarnir geta brugð-
ist til beggja vona og nokkur áhætta fylgir
notkun þeirra hér.
TÚNJURTIR.
Úrvalsstofnar: Korpa (íslenskur), Engmo
(norskur).
Óreyndur stofn: Topas Ötofte (danskur).
Vallarfoxgras (Phleum pratense).
Vallarfoxgras er eitt af algengustu túngrös-
um á íslandi. Það er uppskerumikið og
lostætt sláttugras. Ef vel er farið með tún,
endist vallarfoxgras í því lengi, jafnvel í
áratugi.
Vallarfoxgras.
Túnvingull (Festuca rubra).
Nægjusöm jurt, sem þrífst við misjöfn skil-
yrði. Túnvingull hefur reynst vel til að græða
upp aura og sanda. Hann þolir vel traðk.
Túnvingull getur gefið mikla og næringar-
ríka uppskeru, en skepnur virðast ekki
mjög sólgnar í hann. Ekki hefur enn fundist
330
F R E Y R