Freyr - 15.05.1977, Page 11
stofn af túnvingli, sem skarað hefur fram
úr öðrum.
Reyndir stofnar: Rubina Roskilde (dansk-
ur), Dasas (danskur), Echo Dæhnfeldt
(danskur).
Óreyndur stofn: Taca Trifolium (danskur).
Vallarsveifgras (Poa pratensis).
Vallarsveifgras er harðger og lostæt beitar-
jurt, sem er einnig dágott sláttugras. Gefur
lystugt og næringarríkt hey. í blöndu með
vallarfoxgrasi er vallarfoxgras meginuppi-
staða uppskerunnar í 1. slætti en vallar-
sveifgrasið gefur hána.
Úrvalsstofn: Fylking (sænskur).
Reyndir stofnar: Arina Dasas (danskur).
Delft (hollenskur).
Háliðagras (Alopecurus pratensis).
Háliðagras er harðger slægjujurt og þolir
beit allvel. Það vex fyrr en flestar aðrar
grastegundir og er hálftrénað, þegar hæfi-
legt er að slá önnur grös.
Úrvalsstofn: Oregon (kanadiskur).
Hávingull (Festuca elatior).
Lítt þolin, hávaxin jurt. Kemur vart til greina
að nota hann annars staðar en sunnan
lands, þar sem sprettutími er lengstur.
Reyndur stofn: Pajbjerg (danskur).
Hásveifgras (Poa trivialis).
Lítt þolin, hávaxin jurt, sem má segja það
sama um og hávingul.
Reyndur stofn: Dasas (danskur).
Vallarrýgresi (Lolium perenne).
Getur lifað af góðan vetur hér og gefur þá
góða uppskeru á öðru sumri. Er fljótt til að
vori.
Óreyndur stofn: Verna Pajbjerg (dansk-
ur).
Skriðlíngresi (Agrostis stolonifera).
Skriðlíngresi vex vel í fremur rökum jarð-
vegi. Margir erlendir stofnar hafa verið
reyndir hér en enginn reynst vel.
Hvítsmári (Trifolium repens).
Góð beitarjurt, en í túnum endist hann
lítið vegna yfirgangs grasa. Á óábornu landi
er hann hins vegar í essinu sínu.
Óreyndur stofn: Milka Pajbjerg (danskur).
GRÆNFÓÐURJURTIR.
Hafrar (Avena sativa).
Hafrar eru árvissir og uppskerumiklir til
grænfóðurræktunar. Vaxtartími hafra fram
til þroskunar er mislangur, og má reyndar
skipta þeim í tvo hópa eftir lengd vaxtar-
skeiðsins, sumarhafra og vetrarhafra.
a) Sumarhafrar þurfa stuttan vaxtartíma.
Við grænfóðurrækt þarf að gæta þess, að
þeir spretti ekki úr sér. Best er að nýta þá
með beit eða slætti á um það bil viku.
Oftast eru hafrar á heppilegu nýtingarstigi
um þremur mánuðum (90 dögum) eftir sán-
ingu.
Góðir stofnar: Sol II (sænskur), Flamo
(franskur), Selma (sænskur).
Óreyndir stofnar: Sang (sænskur), Port-
hos (franskur), Athos (franskur).
b) Vetrarhafrar þurfa langan vaxtartíma
331
F R E Y R