Freyr - 15.05.1977, Síða 17
fleka í vegg til hliðar við dyr, sem þá væru
af venjulegri breidd. Breidd dyra þarf að
vera breidd mjólkurtanksins að viðbættum
15 cm.
Gluggar skulu vera opnanlegir og svo
stórir, að nægileg birta berist inn í mjólkur-
húsið.
d. Gólfið.
Gólfið verður að vera úr hörðu efni, sem
þolir vel þvott og sýrur. Á því verður að
vera hæfilegur halli að niðurfalli. Það verð-
ur að vera vatnshelt og hafa mikið þurðar-
þol.
e. Veggir og þak.
Veggir skulu vera úr hörðu efni í minnst
150 cm hæð. Þeir eiga annað hvort að vera
gerðir úr steinsteypu og múrhúðaðir og
málaðir eða flísalagðir eða gerðir úr timb-
urgrind klæddri með vatnsheldum krossvið
eða álplötum. Rétt er þó að hafa ætíð
neðsta hluta veggsins í ca. 15 cm hæð úr
steinsteypu til að verja timbrið fyrir bleytu
og raka. Mála skal það, sem mála þarf í
mjólkurhúsi, með Ijósri málningu, sem þolir
vel þvott.
f. Aðstaða til þvotta.
í mjólkurhúsinu þarf að vera unnt að koma
fyrir, auk mjólkurtanks, þvottaborði og hita-
dunk. Þvottaborðinu verður að koma fyrir,
þar sem góð birta er, t.d. undir glugga.
Hitadunkinn skal ekki setja yfir þvottaborð-
inu, því þar er meiri hætta á ryðskemmdum
á honum en annars staðar.
g. Lýsing í mjólkurhúsum.
Rafljósi í mjólkurhúsi þarf að koma fyrir
þannig, að tankurinn lýsist vel að innan,
þegar lokið er tekið af honum, og skugga
beri ekki á vinnuborð. Bestur verður árang-
urinn og minnstur rafmagnskostnaður, ef
notuð eru flúrljós. í litlum mjólkurhúsum
ættu að nægja tvö 40 W flúrljós, en í stór-
um húsum ætti að koma fyrir fjórum 40 W
flúrljósum.
FREVR
Gott útiljós þarf að vera yfir mjólkurhúss-
dyrum og hellulögð eða steinsteypt stétt
þarf að liggja frá þeim.
3. Loftræsting mjólkurhússins.
Loftræstingu í mjólkurhúsinu má ekki van-
rækja. í illa loftræstum mjólkurhúsum sest
fljótt mygla á veggi og loft og ýmiss konar
annar sveppa- og þörungagróður.
Góð loftræsting í mjólkurhúsi er einnig
nauðsynleg vegna þess, að kalt loft þarf
að berast að kælivél mjólkurtanksins til að
taka við varma þeim, sem úr mjólkinni kem-
ur, sé hann ekki nýttur, t.d. til upphitunar
á þvottavatni. Ef loftræsting er léleg, hitnar
fljótt í mjólkurhúsinu og kælivél tanksins
gengur lengur og rafmagnseyðsla verður
meiri svo og viðhald vélar.
Koma þarf fyrir tveimur loftopum á mjólk-
urhúsinu til þess að ná sæmilegri loftræst-
ingu. Inn um annað opið er tekið hreint
loft en um hitt er lofti veitt út. Koma má
þessu fyrir á eftirfarandi hátt.
a. Loftinnrás.
Loftinnrás er komið fyrir í útvegg í um 20
cm hæð yfir gólfi, sem næst eimsvala kæli-
vélar.
Utan á útveggnum er komið fyrir ramma,
sem unnt þarf að vera að losa á auðveldan
hátt. í rammanum er fínriðið nælonnet með
tveggja mm möskvum, og utan á það er
sett net með 10 mm möskvum, ryðfrítt. Það
er til að hindra, að flugur og fiðrildi sogist
inn. Á vegginn innanverðan skal setja still-
anlegt lok úr olíusoðnum krossviði eða
masoniti. Best er, að lokan sé drekin til
hliðar.
b. Loftútrás.
Loftútrásin, sem á að vera með stillanlegri
loku, skal vera um það bil helmingi minni
að ummáli en loftinntakið. Best er, að loft-
útrásinni sé komið fyrir sem lengst frá loft-
inntakinu. Ef loftræsting er góð í fjósinu,
Framh. á bls. 350.
337