Freyr

Volume

Freyr - 15.05.1977, Page 19

Freyr - 15.05.1977, Page 19
Æður á hreiðri breiðir sig vandlega yfir eggin. Þetta vekur eftirtekt og hrifningu koilunnar, en hún á þaS svo til að hvetja maka sinn til þess að hafast nokkuð að, m.a. að leggja til atlögu við annan karlfugl í hópnum, gjarnan einhvern ákveðinn, sem hún bendir til með því að teygja hálsinn í áttina til hans og hneigir sig þá gjarnan svo sem tvisvar um leið, rétt eins og hún vilji, að karl sinn sýni hvers hann er megnugur. Blikinn fer gjarnan að bendingu kollunn- ar til árásar á þann útvalda, en kollan gefur frá sér velþóknunarhljóð. Sú rödd hennar er allt önnur en hin, sem hún beitir, þegar hún kallar á unga sína til hlýðni, og allt önnur en hún notar, þegar hún aðvarar þá gegn hættu. Skipanir hennar eru: g o k k — gookk, en aðvörun er: kroaa kroaah. Annars er yfirleitt talið, að mál æðarfugls- ins sé: úú-aa-úú-aa-úú. Fuglinn úar, eins og menn segja. Útbreiðsla æðarfugls. Æðarfuglinn er mjög algengur við allar strendur norðursins, allt frá Frakklandi til Grænlands, íslands, Færeyja, Jan Mayen, Noregs, Svalbarða (Spitsbergen) og Síber- íu, en ættkvíslir og afbrigði eru nokkur eftir hafsvæðum. Þó að hann virðist félagslynd vera og tiltölulega mikið staðbundinn, er hitt einnig staðreynd, að nokkrir einstakl- ingar flækjast um langvegu, svo sem Spits- bergen-æðarfugl (S. mollissima borealis), er komið hefur hingað til lands, og svo æðarkóngur, sem líklega kemur frá Græn- landi að heimsækja okkur. Hér við land er æðarfugl við allar fjörur 239 FREYR

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.