Freyr

Årgang

Freyr - 15.05.1977, Side 32

Freyr - 15.05.1977, Side 32
stæðunum var endurmetið sumarið 1974 til að kanna, hvort breyting hefði orðið á því, frá því að landið var kortlagt. Orkustofnun gaf síðan út gróðurkort af virkjun- arsvæði Blöndu í mælikvarða 1:40 000 árið 1975, og geta allir, sem áhuga hafa á, orðið sér út um eintak af því. Beitargildi eða beitarþol var reiknað sérstaklega fyrir það gróðurlendi, sem færi undir vatn á lónsstæðunum, annars vegar á Auðkúluheiði og hins vegar á Eyvindarstaða- heiði. Það er ekki byggt á meðalbeitargildi alls afréttar- svæðisins, grónu sem ógrónu, né heldur á meðaltali alls gróins lands á svæðinu, eins og bréfritari staðhæfir. Við kortlagninguna 1966 reyndist heildarstærð gróins lands á Eyvindarstaðaheiði vera um 29000 hektarar, en nýtanlegt gróðurlendi mun vera minna nú vegna nýrrar girðingar, sem sett hefur verið upp á norðurmörkun af- réttarins. Reiknað var út fyrir tilkomu hennar, að Eyvind- arstaðaheiði hefði beitarþol fyrir um 13000 ærgildi (ær með 1,4 lömb) í 90 daga. Þar þarf því um 2,2 hektara gróins lands til að framfleyta einu ærgildi í þennan tíma. Gróðurlendi á fyrirhuguðu lónsstæði á Eyvindarstaða- heiði hefur beitarþol fyrir um 700 ærgildi í 90 daga, og þar þarf því 2 hektara til að framfleyta einu ærgildi í þennan tíma. Hver flatareining gróins lands á lónsstæð- inu hefur því um 10% meira beitargildi en gróður afrétt- arins í heild að meðaltali. í töflunni hér að neðan er sýnt, hvernig gróðurlendi afréttarins og lónsstæðisins skiptist að flatarmáli. Allur Gróðurlendi afrétturinn Lónsstæðið Mosaþemba 13,6% 25,6% Kvistmóar ...................... 40,3— 30,7— Sefmóar ........................ 5,5— 14,0— Starmóar 7,2— 1,6— Graslendi ...................... 4,7— 4,9— Fléttumóar...................... 4,2— 0,2— Nýgræður ....................... 1,1— 0,8— Snjódældir ..................... 0,8— Votlendi (mýrar, flóar, hálfdeigjur) 22,6— 22,2— Taflan sýnir, að gróðurfar á lónsstæðinu er mjög svip- að gróðurfari afréttarins í heild. Hlutdeild votlendis er u.þ.b. hin sama, en aðalmunurinn er fólginn í hlutdeild mosaþembu og kvistlendis. Vonandi nægja þessar upplýsingar til að leiðrétta óþarfa misskilning, sem varð megintilefni tveggja bréfa „norðlensks bónda“. 352 Ingvi Þorsteinsson. F R E Y R

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.