Freyr - 01.05.1979, Blaðsíða 5
BÚNAÐARBLAÐ
75. árgangur
Nr. 9, mai 1979
Útgefendur:
BÚNAÐARFÉLAGÍSLANDS
STÉTTARSAMBAND BÆNDA
Útgáfustjórn:
EINAR ÓLAFSSON
HALLDÓR PÁLSSON
ÓLI VALUR HANSSON
Ritstjóri:
JÓNAS JÓNSSON
Aðstoðarritstjóri:
JULIUS J. DANÍELSSON
Heimilisfang:
BÆNDAHÖLLIN. REYKJAVÍK
PÓSTHÓLF 7080, REYKJAVÍK
Áskriftarverð kr. 5500
árgangurinn
Ritstiórn, innheimta, afgreiósla og
auglýsingar:
Bændahöilinni, Reykjavik, simi 19200
Ríldsprentsmiðjan Qutenberg
Reykjavík — Siml 84522
EFNI:
Aukafundur
Stéttarsambandsins
Túngrös
Idreifing búfjáróburðar
Laxakynbætur
Of eða van
um ær og kýr
Oröabók landbúnaðarins
Áskorun um nýja land-
græðsluáætlun
Frá formannafundi
Þyrlað um knosara
Aukafundur
Stéttarsambandsins
Dagana 25.—26. apríl var efnt til aukafundar Stéttarsam-
bands bænda I Bændahöllinni I Reykjavík. Aðalverkefni
þessa fundar var að fjalla um aðgerðir og tímabundnar
ráðstafanir til takmörkunar á búvöruframleiðslunni sam-
kvæmt nýgerðum breytingum á Framleiðsluráðslögunum.
•
Eins og fram hefur komið samþykkti Alþingi hinn 6. apríl s.
I. breytingu á Framleiðsluráðslögunum. Breyting þessi
fólst aðeins í því, að sett var inn ein ný grein í lögin, sem
heimilar, að gripið verði til ákveðinna ráðstafana, sem oft
hafa verið nefnd ,,stjórntæki“ á framleiðslunni, þegar bú-
vöruframleiðslan er meiri en þörf er fyrir á innlendum
markaði og ekki fást viðunandi markaðir erlendis fyrir það,
sem um fram er, að mati Framleiðsluráðs landbúnaðarins.
Engum mun blandast hugur um, að slíkarséu aðstæðurnar
nú.
En þá eru Framleiðsluráði landbúnaðarins heimilar, að
fengnu samþykki fulltrúafundar Stéttarsambands bænda
og staðfestingu landbúnaðarráðherra, tímabundnar ráð-
stafanir, sem tilgreindar eru í tveimur stafliðum í laga-
greininni.
í a-lið er heimilað:
„Að ákveða mismunandi verð á búvöru til framleiðenda. í
því sambandi er m. a. heimilt að ákveða framleiðendum
fullt grundvallarverð fyrir ákveðinn hluta framleiðslunnar,
en útflutningsverð fyrir það, sem umfram er.
Að greiða með samþykki ríkisstjórnarinnar hluta af
niðurgreiðslunum til framleiðenda í samræmi við fram-
leiðslumagn allt að ákveðnu marki, en síðan stiglækkandi
eftir því, sem framleiðslan vex þar fyrir ofan. Heimilt er að
ákveða rétt frumbýlinga í samræmi við bústofn þeirra".
í þriðja lagi er heimilað undir þessum lið:
„Að innheimta framleiðslugjald til verðjöfnunar, sem má
vera mishátt eftir bústærð, ef ástæða þykir til“. Og enn-
fremursegir: „Rétturþeirra, sem hefja búskap, dragasam-
an búvöruframleiðslu eða hætta búskap, skal tryggður
með ákvæðum í reglugerð“. Og svo segir, að heimilt sé að
nota samtímis ofangreindar heimildir.
Til að skýra þetta nánar, er rétt að benda á, að hér er um
þrjár leiðir eða útfærslu að ræða á því, sem oft hefur verið
nefnt „kvótakerfi".
FREYR
269