Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1979, Blaðsíða 31

Freyr - 01.05.1979, Blaðsíða 31
Teknir eru allir þrír áöurnefndir heygæða- möguleikar: 1. um eða undir 1.6. kg/ffe, merkt A—1 og B—1 hér á eftir. 2. 1.8—1.9 kg/ffe, merkt A—2 og B—2 hér á eftir. 3. yfir 2.0 kg/ffe, merkt A—3 og B—3 hér á eftir. Setjum svo, að áðurnefnt stjórnkerfi kýr- innar( sem héreftir verðureinfaldlega kallað ,,kerfið“) í tilfelli A (5.5 ffe um burð) ákveði t.d. 20—22 kg hámarksdagsnyt samkvæmt erfðaeðli, sem gæti verið 28—30 kg. Þetta þýðir, að kýr A þarf að bæta við sig 6.5. ffe á 4—6 vikum, en B—kýrin 7.5 ffe á sama tíma. Þótt ekki muni meiru en einni ffe á aukning- unni, þá þarf mun meira átak hjá B—kúnni, þar eð hún þarf að nálgast meira þau takmörk, sem lystin setur. Alla jafna má reikna með um 17.5 kg hámarksfóðri á dag.Miðað við blöndu af þurrbeyi og kjarn- fóðri. Góð kýrætti þó að komast hærra, jafn- vel í um 20 kg á mjög góðu heyi og kjarnfóðri. Lítum nú á heygæðaflokkana hér að framan í þessu sambandi:Tilfelli A—1. Kýrin fer létt með að éta 13—14 kg af heyi og um 4 kg af kjarnfóðri, eða samsvarandi orku, um 4—6 vikum eftir burð, sem nægir vel fyrir nytinni (20—22 kg), án súrdoðahættu. í þessu tilfelli þarf þó ekki að fylgja fóðrun fast eftir fljótt eftir burð til þess að kerfið endurmeti stöð- una og komi kúnni upp í sín 28 kg. Er þá vissulega nokkur hætta á súrdoða; meðal annars vegna þess. að hætta er á melting- artruflun og lystarleysi. Tilfelli B—1. Kýrin étur sem svarar 11—12 kg af heyinu og 7.5—8 kg af kjarnfóðri og ætti að takast það án teljandi súrdoðahættu. Lítum næst á lakasta heyið (yfir 2 kg/ffe) og þá fyrst tilfelli A—3. Af svo lélegu heyi étast varla meira en 9—10 kg með þeim 7.5 kg af kjarnfóðri, eða samsvarandi, sem kýrin þarf í 20 kg dagsnyt, sem veldur ekki teljandi súrdoðahættu. Tilfelli B—3. Þótt B—3 kýrin eigi þann möguleika að komast í upp undir 30 kg nyt eins og staðan er rétt fyrir og um burðinn, kemurfljóttí Ijós, jafnskjóttog kýrin fer að mjólka og krefjast mjög aukinnar orku, hve vonlaus aðstaðaskapast, en hún lýsirsér í þeim 7—8 kg af heyi með 11.5 kg af kjarn- fóðri, sem kussa hefði þurft í upp undirÓO kg nyt. Skapar þetta kerfinu tíma til að endur- meta stöðuna, þannig, að markið fellur á svipað stig og í tilfelli A og kýrin nær að stöðva sig áður en rokið er upp úföIIu valdi. Möguleiki er þó á, að ,,kerfið“ átti sig ekki í tíma, sem þá býður súrdoðahættunni heim. Athugum að síðustu ,,sæmilega“ heyið, þ.e. tilfelli A— og B—2: Tilfelli A—2. Með því að éta 10—11 kg af heyi og 5.5—6 kg kjarn- fóðurs eru líkur til, að kýrin sleppi við súr- doða án ,,kerfis“breytinga. Ef hins vegar er fylgt vel á eftir með fóðrun strax eftir burð, getur ,,kerfið“ leyft hækkun á nyt, sem eykur súrdoðahættuna svo verulega, að kvillinn verður næstum óumflýjanlegur. Tilfelli B—2. Til þess að ná orkujöfnuði við tæp 30 kg mjólkur þarf kýrin að éta 9—10 kg af heyi og 9.5—10 kg af kjarnfóðri eða samsvarandi sem teljast verður mjög hæpið að hún geti áfallalaust. Líkur eru nokkrar til, að ,,kerfið“ átti sig þó ekki á þessu fyrr en kýrin hefur rokið upp í nyt með yfirvofandi súrdoð- ahættu í kjölfarið. Þessi lausn á dæminu hér að framan er að sjálfsögðu mjög einfölduð. T. d. eru skilin á milli afurðasemi og súrdoða miðuð við fóð- urgildi heys ýmsu öðru háð og því sveigjan- legri en hér er fram sett en spjaliið á þó að draga fram helstu atriði meiningarinnar. Að lokum skulu dregin fram nokkur höf- uðatriði í fóðrun og fóðrunarháttum til að ná hámarksafurðum og lágmarkshættu á súr- doða: 1. Velja þarf besta heyið handa nýbærunum. Má það helst ekki vera lakara en 1.7 kg í ffe. 2. Mjög er ráðlegt að skipta kúnum niður í fjósið eftir burðartíma. 3. Kýrnar þurfaað vera komnaralveg á besta heyið a. m. k. viku fyrir tal. FREYR 295

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.