Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1979, Blaðsíða 13

Freyr - 01.05.1979, Blaðsíða 13
SKRIÐLÍNGRESI. Skriðlíngresi (Agrostis stolonifera) er al- gengt í túnum hér á landi, þótt sjaldan hafi verið til þess sáð. Skriðlíngresi myndar langar, skriðular renglur, bæði ofan jarðar og neðan. Puntur- inn er fíngerður og mikið greindur. Blöðin eru lensulaga og lítið ber á miðstrengnum í þeim. Þau eru snörp báðum megin. Skriðlíngresi vex einkum þar, sem raklent er. Það virðist þola áburðarskort öðrum grösum betur. Skriðlíngresi hefur oft verið reynt í til- raunum hér, en aldrei reynst vel. Fræið hefur verið af erlendum uppruna, en fáir viður- kenndir stofnar eru til af língresi. Þar sem íslenskt língresi er komið í tún, getur það gefið góða háaruppskeru, því að skriðlín- gresi sprettur langt fram eftir hausti. Skepn- ur éta língresi með ágætri lyst. SNARRÓTARPUNTUR. Snarrótarpuntur (Deschampsia caespitosa) eða snarrót er algengt gras hér á landi og vex víða þar, sem skilyrði fyrir önnur grös eru erfið. Það er stórvaxið gras (50—120 sm), sem vex gjarnan í þúfum eða toppum, snar- rótartoppum, og er auðþekkt á þeim. Blöðin eru snörp viðkomu. Snarrótarpuntur vex við margvísleg skil- yrði. Hann er oft ríkjandi í túnum, þar sem vatnsagi og ísaiög drepa annan gróður. í þurrum jarðvegi vex hann stundum það þétt, að lítið verður vart við snarrótartoppana. Snarrót þykir þola ísa og kulda öðrum grös- um betur og kelur sjaldan. Snarrótarpuntur Víðast hvar er litið á snarrót sem illgresi, og margir telja, að það sé það einnig hér á landi. Stofnar fyrirfinnast ekki á fræmörkuð- um og því fræi, sem hér hefur verið notað, hefur verið safnað hér á landi. í samanburðartilraunum hér á landi hefur snarrót oft verið uppskerumikil, en ekki er eins víst, að um gott fóður sé að ræða, því að snarrót sprettur snemma úr sér. Til þess að fá FREYR 277

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.