Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1979, Blaðsíða 15

Freyr - 01.05.1979, Blaðsíða 15
gefist illa, en vera má, að stofnar þeir, sem reyndir hafa verið, hafi ekki verið af nógu norðlægum uppruna. Hann vex villtur sem slæðingur suðvestanlands. Axhnoðapuntur er stórt og grófgert gras, sem er auðþekkt á puntinum. Hann er dálítið einhliða og smáöxin standa í þéttum hnoðum. Úr sér vaxinn axhnoðapuntur er eins og hálmur. Axhnoðapuntur þrífst best í þurrum jarðvegi, þolir þurrk vel, en raka miður. FÓÐURFAX. Fóðurfax (Bromus inermis) eða sandfax eins og það er líka kallað er útbreitt í tempraða beltinu nyrðra. Hér á landi var það ekki í óræktuðu gróðurlendi til skamms tíma. Fóðurfax Margir ræktaðir fóðurfaxstofnar eiga rætur að rekja til Ungverjalands, Austurríkis og Rússlands. Fóðurfax er hávaxin, blaðrík jurt, sem gef- ur gott fóður. Það hefur ekki þótt endast lengi í ræktun hér og hefur lítið verið notað, en var um tíma allnokkuð notað við upp- græðslu sanda, einkum á Suðurlandi. VALLARRÝGRESI. Vallarrýgresi (Lolium perenne) eða enskt rý- gresi vex villt um mikinn hluta Evrópu, þó ekki nyrst. í túnum suður í álfu er vallarrý- gresi langlíft og gefur af sér mikla og góða uppskeru.Vallarrýgresierþvíeitteftirsóttasta túngrasið í mörgum Evrópulöndum. Vallarrýgresi er ekki mjög harðgert, enda eru norðurmörk þess í Evróþu um Mið-Sví- þjóð. Hér á landi hefur það verið reynt í til- raunum, en endist illa nema einstaka planta. EINÆRT RÝGRESI. Einært rýgresi (Lolium multiflorum) eða ít- alskt rýgresi er upprunnið í Suður-Evrópu. Breytileiki þess er mikill og til eru einær, tví- ær og fjölær afbrigði af því. Eitt afbrigðið er westerwoldiskt rýgresi, sem varð til við úrval FREYR 279

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.