Freyr - 01.04.1981, Side 9
Tónninn
Magnús Þorsteinsson
Höfn, Borgarfirði eystra
Hreindýr og hreindýraveiðar
Hin síðari ár hafa hreindýrin á Austurlandi breytt mjög háttum sínum. Aðalsumarhagar
þeirra hafa tilskamms tíma verið í nágrenni Snæfells en þaðan leituðu þau út heiðar og niður
í byggð er vetra tók. Síðustu 10—15 árin hefur œ stærri hluti hjarðarinnar tekið sér bólfestu í
Austfjarðafjallgarðinum, og dölum inn af Austfjörðum, allt frá Borgarfirði í norðri til
Hornafjarðar í suðri.
Kýrnar bera niðri á fjörðunum og
halda sig þar og í fjöllunum allt
árið ásamt törfum og geldneytum.
Við talningu hreindýranna s. 1.
sumar kom í ljós að rúmlega
helmingur hreindýrastofnsins var
á þessu svæði. Hvað valdið hefur
þessari breytingu á hátterni
hreindýranna er erfitt að geta sér
til um en benda má á að samtímis
því að hreindýrastofninn mun hafa
verið í hámarki þessi ár, grisjaðist
byggð nokkuð í fjörðunum. Byggð
lagðist af milli Norðfjarðar og
Eskifjarðar fyrir u. þ. b. 20 árum
og 10—15 ár eru síðan byggðin
milli Borgarfjarðar og Seyðis-
fjarðar, Víkur og Loðmundar-
fjörður, fór að mestu í eyði. Á
þessum tveimur svæðum halda
hreindýrin sig mest ásamt Mjóa-
firði en þar hefur byggð dregist
saman. Þá hefur mér dottið í hug
að staðhættir á fjörðunum henti
hreindýrunum vel að því leyti að
skammt er milli fjalllendis og lág-
lendis. Oft er það svo á vetrum að
sn jó rífur til fjalla og geta þar verið
góðir hagar þó jarðbönn séu á
láglendi. í annan tíma auðnast
Iáglendið í vetrarhlákum þó hag-
laust sé til fjalla. í fjörðunum eru
hreindýrin ekki nema nokkrar
mínútur að skokka milli fjalls og
fjöru. Bændur í fjarðabyggðunum
munu líta þetta landnám hreindýr-
anna nokkuð misjöfnum augum.
Víst er um það að þau ganga nærri
landinu á takmörkuðum svæðum á
vetrum og séð hefi ég skemmdir á
gróðurlendi eftir þau sem lengi
verða að hverfa, en stórfelldar vil
ég ekki kalla þær. Þó neita ég því
ekki að sumarið 1979 (ef sumar
skyldi kalla) sá ég verulega eftir
fyrstu gróðurnálunum, sem gægð-
ust upp úr túninu og flestar fóru í
hreindýrin.
Mér virðist einsýnt að varðveita
skuli hreindýrastofninn. Hrein-
dýrin lífga verulega upp á fáskrúð-
ugt dýralíf í landinu. Flestir myndu
sakna þeirra ef þau hyrfu þó að
þau séu misjafnlega vinsæl eins og
er. Ekki er þó ráðlegt að láta þeim
fjölga svo mjög að þau verði alls
staðar illa þokkuð. Hóflega og
hæfilega stofnstærð álít ég vera á
bilinu 2.000—4.000 hreindýr eða
svipuð og hún hefur verið undan-
farin ár. Dreifi hreindýrin sér
meira um landið en nú er, mætti
stofninn að sjálfsögðu vera stærri.
Jafn sjálfsagt sýnist mér að nytja
stofninn án þess að ganga nær
honum en að framan er greint og
má tala um aukabúgrein í því
sambandi — en það orð er nú m jög
í tísku. Vissulega hafa verið
leyfðar veiðar undanfarin ár en
spurning er hvort ekki mætti
standa betur að þeim málum og því
eru þessar línur settar á blað, ef
verða mætti til að vekja til um-
hugsunar um þessi efni. Fulltrúar
Menntamálaráðuneytisins hafa
um árabil komið austur á land og
haldið fundi með hreindýraeftir-
freyr — 249