Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.04.1981, Qupperneq 9

Freyr - 01.04.1981, Qupperneq 9
Tónninn Magnús Þorsteinsson Höfn, Borgarfirði eystra Hreindýr og hreindýraveiðar Hin síðari ár hafa hreindýrin á Austurlandi breytt mjög háttum sínum. Aðalsumarhagar þeirra hafa tilskamms tíma verið í nágrenni Snæfells en þaðan leituðu þau út heiðar og niður í byggð er vetra tók. Síðustu 10—15 árin hefur œ stærri hluti hjarðarinnar tekið sér bólfestu í Austfjarðafjallgarðinum, og dölum inn af Austfjörðum, allt frá Borgarfirði í norðri til Hornafjarðar í suðri. Kýrnar bera niðri á fjörðunum og halda sig þar og í fjöllunum allt árið ásamt törfum og geldneytum. Við talningu hreindýranna s. 1. sumar kom í ljós að rúmlega helmingur hreindýrastofnsins var á þessu svæði. Hvað valdið hefur þessari breytingu á hátterni hreindýranna er erfitt að geta sér til um en benda má á að samtímis því að hreindýrastofninn mun hafa verið í hámarki þessi ár, grisjaðist byggð nokkuð í fjörðunum. Byggð lagðist af milli Norðfjarðar og Eskifjarðar fyrir u. þ. b. 20 árum og 10—15 ár eru síðan byggðin milli Borgarfjarðar og Seyðis- fjarðar, Víkur og Loðmundar- fjörður, fór að mestu í eyði. Á þessum tveimur svæðum halda hreindýrin sig mest ásamt Mjóa- firði en þar hefur byggð dregist saman. Þá hefur mér dottið í hug að staðhættir á fjörðunum henti hreindýrunum vel að því leyti að skammt er milli fjalllendis og lág- lendis. Oft er það svo á vetrum að sn jó rífur til fjalla og geta þar verið góðir hagar þó jarðbönn séu á láglendi. í annan tíma auðnast Iáglendið í vetrarhlákum þó hag- laust sé til fjalla. í fjörðunum eru hreindýrin ekki nema nokkrar mínútur að skokka milli fjalls og fjöru. Bændur í fjarðabyggðunum munu líta þetta landnám hreindýr- anna nokkuð misjöfnum augum. Víst er um það að þau ganga nærri landinu á takmörkuðum svæðum á vetrum og séð hefi ég skemmdir á gróðurlendi eftir þau sem lengi verða að hverfa, en stórfelldar vil ég ekki kalla þær. Þó neita ég því ekki að sumarið 1979 (ef sumar skyldi kalla) sá ég verulega eftir fyrstu gróðurnálunum, sem gægð- ust upp úr túninu og flestar fóru í hreindýrin. Mér virðist einsýnt að varðveita skuli hreindýrastofninn. Hrein- dýrin lífga verulega upp á fáskrúð- ugt dýralíf í landinu. Flestir myndu sakna þeirra ef þau hyrfu þó að þau séu misjafnlega vinsæl eins og er. Ekki er þó ráðlegt að láta þeim fjölga svo mjög að þau verði alls staðar illa þokkuð. Hóflega og hæfilega stofnstærð álít ég vera á bilinu 2.000—4.000 hreindýr eða svipuð og hún hefur verið undan- farin ár. Dreifi hreindýrin sér meira um landið en nú er, mætti stofninn að sjálfsögðu vera stærri. Jafn sjálfsagt sýnist mér að nytja stofninn án þess að ganga nær honum en að framan er greint og má tala um aukabúgrein í því sambandi — en það orð er nú m jög í tísku. Vissulega hafa verið leyfðar veiðar undanfarin ár en spurning er hvort ekki mætti standa betur að þeim málum og því eru þessar línur settar á blað, ef verða mætti til að vekja til um- hugsunar um þessi efni. Fulltrúar Menntamálaráðuneytisins hafa um árabil komið austur á land og haldið fundi með hreindýraeftir- freyr — 249

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.