Freyr - 01.04.1981, Blaðsíða 20
Parna er orlofshópur nr. 2 að bíða eftir því að fara inn í sútunarverksmiðju Sláturfélags Suðurlands. Allir hóparnir þrírfóru
þangað og fengu feikna fróðleik hjá Ásgeiri framleiðslustjóra um verð á gærum og framtíðarhorfur. Kvenfólkinu þótti lyktin
vond þarna inni. (Ijósmyndir með þessari grein tóku J.J.D. og A.G. myndatextar A.G.)
Sveitafólk í orlofi
Líklega hafa íslensku kvenfélagasamtökin átt frumkvœöiö
að reglulegum orlofsdvölum húsmæðra hér á landi. Einnig
má telja skipulegar bœndaferðir á vegum Búnaðarfélags
Islands af sama toga. En fyrsti vísir að alhliða orlofi sveita-
fólks voru tvær orlofsvikur á Hvanneyri íjúni og ágúst ífyrra
og var þeirra getið í Frey á sínum tíma. Peim var komið á
fyrir samstarf Bændaskólans á Hvanneyri og Stéttarsam-
bands bænda. Líkaði þessi starfsemi vel.
Á aðalfundi Stéttarsambands
bænda 1980 var samþykkt að
skipuleggja orlofsdvöl fyrir
sveitafólk að vetri til í Reykjavík.
Þessu var svo hrundið í fram-
kvæmd á fyrstu mánuðum yfir-
standandi árs með samstarfi Stétt-
arsambands bænda, Upplýsinga-
þjónustu landbúnaðarins og Hótel
Sögu í Reykjavík. Upplýs-
ingaþjónusta landbúnaðarins
kynnti málefnið í vetrarbyrjun
með því að senda öllum hreppa-
búnaðarfélögunum greinargerð
um hvað til stóð.
260 — FREYR
Agnar Guðnason blaðafulltrúi
bændasamtakanna hefur borið veg
og vanda af því að skipuleggja or-
lofsdvölina og fréttamaður Freys
innti hann tíðinda af þessari starf-
semi.
Fyrsta orlofsvikan var frá 26.
janúar til 1. febrúar. Þátttakendur
voru þá 25. Vikuna 9.—13. febrú-
ar voru 39 manns og 37 í síðustu
orlofsvikunni, 9.—15. mars. Hafa
því rúmlega 100 manns notið or-
lofsdvalar á vegum bændasamtak-
anna að þessu sinni.
Hvernig var orlofmu hagað?
Það var nokkuð fastmótað í öll *
þrjú skiptin. Orlofsfólkið gisti á
Hótel Sögu, og þar var það eigin
húsum en bændasamtökin eiga
(Búnaðarfélag íslands á 2/3 Stétt-
arsamband bænda 1/3 hluta í
Bændahöllinni) og reka þar gisti-
hús eins og vonandi allir vita.
Aðaláherslan var lögð á að
heimsækja afurðasölufélög bænda
og má segja að fimm fastir liðir hafi
verið á öllum orlofsvikum:
Heimsókn í Sútunarverksmiðju
Sláturfélags Suðurlands, Afurða-
sölu S.Í.S., Osta- og Smjörsöluna,
Mjólkursamsöluna og Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins. i
Þá var farið í Frystihús ís-
bjarnarins, heimsóttar verslanir í
bænum, Þjóðminjasafnið skoðað
og drukkið kaffi í Norræna- r
Húsinu. Á kvöldin hefur fólkið
farið í leikhús eða skemmt sér á
annan hátt á Hótel Sögu.
t