Freyr - 01.04.1981, Side 11
Sigfús Jónsson, Framkvæmdastofnun ríkisins,
byggðadeild:
Efling smáiðnaðar í sveitum
Samdráttur íframleiðslu á landbúnaðarvörum virðist óhjákvæmilegur á nœstu árum. Jafn-
framt leiða tækniframfarir stöðugt til fækkunar starfsfólks við hefðbundinn landbúnað. Af
þessum sökum er Ijóst að mikill samdráttur verður í byggð í sveitum, ef ekki kemur til önnur
atvinna þar. íþessu sambandi hafa skotið upp kollinum hugmyndir um nýjar búgreinar og
um smáiðnað ísveitum. íþessarigrein verður reynt að fjalla nánarumþað hversu mikilþörf
er á nýrri atvinnustarfsemi í sveitum og sagtfrá áætlun um eflingu smáiðnaðar í sveitum sem
unnin hefur verið af Framkvæmdastofnun ríkisins.
1. Markmið.
Mikið hefur að undanfömu verið
rætt um þörf á örari iðnþróun á
íslandi á næstu árum, eigi at-
vinnuframboð að verða nægjan-
legt í landinu. Uppbygging iðnaðar
er auðveldari og ódýrari í þéttbýli
en utan þess vegna mikillar fjár-
festingar, sérhæfingar starfsfólks,
viðgerðarþjónustu, flutninga og
stöðugt stærri fyrirtækja. Efling
iðnaðar í þéttbýli verður því að
teljast meginverkefni iðnþróunar í
náinni framtíð.
Það er ljóst að í sveitum eru tals-
vert margir sem vilja starfa við
annað en hefðbundinn landbúnað
og einnig fólk sem ekki hefur að-
stöðu til arðvænlegs búrekstrar. Þá
virðist samkvæmt athugunum
byggðadeildar Framkvæmda-
stofnunar, að fjöldi kvenna og
eldra fólks í sveitum óski eftir atv-
innu utan heimils af fjárhagslegum
og félagslegum ástæðum. Að-
gerðir hins opinbera til eflingar
smáiðnaði í sveitum verða fremur
réttlættar með hliðsjón af félags-
legum, stjómmálalegum eða
menningarlegum markmiðum
stjómvalda en efnahagslegum
markmiðum. Stjórnvöld hafa þeg-
ar lýst yfir vilja sínum til eflingar
smáiðnaði í sveitum með svo-
hljóðandi ályktun Alþingis sem
samþykkt var 14. maí 1979:
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að beita sér fyrir sér-
stökum stuðningi opinberra
aðila við stofnun þjónustu- og
úrvinnsluiðnaðar í sveitum.
Byggðadeild Framkvæmda-
stofnunar ríkisins skal falið að
rannsaka möguleika smáiðnað-
ar í sveitahreppum, safna hug-
myndum um hugsanlegar
framleiðslugreinar, kanna við-
horf og áhuga heimamanna víðs
vegar um land og gera áætlun
um framkvæmdir. Við undirb-
úning þessa máls ber einnig að
taka mið af þeirri allsherjar at-
hugun og tillögugerð varðandi
atvinnumöguleika aldraðra,
sem samþykkt hefur verið á Al-
þingi.
Jafnframt skal lánadeild Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins faiið
að veita heimaaðilum aðstoð
við stofnun fyrirtækja sem
komið er á fót samkvæmt þess-
ari áætlun, og skipuleggja fjár-
magnsöflun til framkvæmda.
Sérstaklega . ber að kanna
möguleika á stofnun og stuðn-
Sigfús Jónsson er stúdent frá Mennta-
skólanum við Hamrahlíð, árið 1971.
Hann lauk síðan B.A. prófi í landa-
frœði frá Háskóla íslands ogM.A. prófi
í landafrœði og skipulagsfrœði frá
Háskólanum í Durham í Englandi, en
doktorsprófi í landafrœði lauk hannfrá
Háskólanum í Newcastle árið 1980.
Sigfús hefur starfað hjá Framkvæmda-
stofnun ríkisins frá árinu 1979. Sigfús
er sonur Jóns Porsteinssonar fyrrv. al-
þingismanns.
ingi við framleiðslusamvinnu-
félög í sveitum. Stuðla ber að
því, að veitt verði óafturkræf
framlög úr Byggðasjóði eða
ríkissjóði til stuðnings smáiðn-
aði í sveitum, allt að 15% stofn-
kostnaðar.
FREYR
251