Freyr - 01.04.1981, Blaðsíða 14
oddvitar síðan fylltu út. Atvinna
utan bús reyndist sem hér segir:
Athyglisvert er að einungis 40 af
106 bændum starfa ekki utan bús.
Á 30 af þessum 40 jörðum taldi
viðkomandi oddviti að aldur
bónda, heilsuleysi eða skortur á
starfsþreki yllu því að búið væri
ekki stærra eða að ekki væri unnið
utan bús. Lang algengustu störf
utan bús reyndust almenn verka-
mannavinna, akstur vörubifreiða,
sláturhússtörf og í Tjörneshreppi
útgerð.
Af þessari stuttu upptalningu
ætti að vera ljóst að störf í öðrum
atvinnugreinum en landbúnaði
hafa verulega þýðingu fyrir af-
komu fólks á svæðinu og styrkja
búsetu þar. Hins vegar er mjö erf-
itt að draga ályktun af þessari
könn un fyrir sveitir annars staðar á
landinu, en mjög áhugavert væri
að kanna sem víðast hversu mikið
er um atvinnu utan bús.
4. Áætlun uni eflingu smáiðnaðar í
sveitum.
í framhaldi af álytkun Alþingis frá
14. maí 1979 fól forsætisráðu-
neytið Framkvæmdastofnun með
bréfi hinn 31. júlí 1979 forgöngu
um framkvæmd þingsályktunar-
innar. Áætlun um eflingu smáiðn-
aðar í sveitum var síðan unnin af
starfsmönnum byggðadeildar
Framkvæmdastofnunar og sam-
þykkt af stjórn hennar 6. maí
1980.
í áætluninni er lagt til að 20
smáum iðnaðarfyrirtækjum í
sveitum verði í tilraunaskyni veitt-
ur fjárhagslegur stuðningur til
framkvæmda árið 1981. Stuðn-
ingurinn verði allt að 75% kostn-
aðar, en þó verði sett ákveðið
hámark. Fyrirtækin sem njóta
stuðnings skulu vera í sveit eða
þorpi sem ekki hefur fleiri en 120
íbúa 1. des. 1978 og í a. m. k. 15
km f jarlægð frá næsta þéttbýlisstað
sem hafði fleiri en 120 íbúa. Þau
svæði sem aðstoðin nær til eru sýnd
á meðfylgjandi mynd. Fyrirtækið
skal vel í sveit sett, þannig að auð-
velt sé fyrir marga íbúa í nágrenn-
inu að sækja þangað vinnu. Ekki
skal stuðlað að aðflutningi fólks,
heldur sköpuð atvinna því fólki
sem þegar býr í nálægð vinnu-
staðarins. Sýna skal fram á að nægt
vinnuafl sé í nágrenninu og vilji til
að taka þá vinnu sem í boði er. Ef
byggðahverfi hefur nú þegar
myndast í sveitarfélaginu, sér-
staklega ef það er staðsett mið-
svæðis í sveitinni, skulu fyrirtæki
þar hafa forgang um aðstoð að
öðru jöfnu. Einnig er æskilegt að
fyrirtæki verði sett niður þar sem
jarðhiti er eða þar sem húsnæði er
fyrir hendi til starfseminnar. Þá var
jafnframt í áætluninni gert ráð
fyrir fjárhagslegum stuðningi til
Heimilisiðnaðarfélags íslands til
eflingar heimilisiðnaði í sveitum
landsins.
Samkvæmt 9. gr. laga um Fram-,
kvæmdastofnun ríkisins frá 1976
skulu áætlanir sendar ríkis-
stjórninni sem gerir Alþingi grein
fyrir þeim. Þá skal Framkvæmda-
stofnun fylgjast með framkvæmd
þeirra áætlana, sem stofnunin hef-
ur samið í samræmi við ákvarðanir
stjórnvalda.
Framkvæmdastofnun hefur tví-
vegis óskað eftir umfjöllun ríkis-
stjórnarinnar um áætlun þessa en
þeirri málaleitan ekki verið sinnt.
Það er því miður alltof algengt að
mál sem snerta langtímahagsmuni
þjóðarinnar, eða hluta hennar, séu
látin reka á reiðanum á meðan
dægurmál, sem oft eru smá í
sniðum, draga til sín alla athygli og
tíma stjórnvalda. Áætlun sú sem
hér hefur verið greint frá er dæmi
um hið fyrrnefnda. Aðalhlutverk
stjórnvalda á að vera að móta
leikreglur lýðræðisins og njóta við
það aðstoðar sérfræðinga, en ekki
að taka þátt í leiknum sjálfum. ís-
lenskir stjórnmálamenn eru
komnir langt út fyrir verksvið sitt
með stöðugum afskiptum sínum af
minniháttar dægurmálum og á
sama tíma vanrækja þeir almenna
stefnumótun og lagasetningu. ■
:
Lengi lifi verðbólgan.
Til eru þeir, sem gleðjast yFir verð-
bólgunni. Fyrirtækið Bradbury
Wilkinson and De La Rue Co.,
sem prentar peningaseðla fyrir 60
lönd um allan heim, sér ekki
ástæðu til að kvarta yfir verð-
bólgunni. Hundrað prósent
verðbólga, er okkar uppáhald,
segir stjórnarformaður fyrirtæk-
isins John Field við blaðið News-
week. Því óstöðugri sem stjórn-
málin eru, því betur ganga við-
skiptin hjá okkur. Stjórnarbylt-
ingar eru í sérstöku uppáhaldi hjá
Bradbury Wilkinson. Nýir ein-
ræðisherrar eiga það sameiginlegt
að þeir vilja hafa mynd af sjálfum
sér á peningaseðlum.
Minna en Engin vinna
Fullt starf Hálft starf hálft starf utan bús
Bændur ............. 26 17 23 40
Aðrir .............. 12 21 38
Alls 38 38 61
254 — FREYR