Freyr - 01.04.1981, Side 24
bent á, aö nauðsynlegt sé að auka
leiðbeiningar í hrossarækt bæði á
vegum Búnaðarfélags íslands og
búnaðarsambandanna. Þá er lýst
stuðningi við, að tilraunir verði
auknar í hrossaræktinni, einkum
hvaða áhrif beit hrossa hefur á
gróðurinn á hálendinu. f>á er ósk-
að eftir að hrossabændur fái veru-
lega aðstoð hins opinbera til að
kanna markaðsmöguleika fyrir
afurðir hrossa og útflutning þeirra.
Þá vill Búnaðarþing ekki sætta sig
við, að slakað sé á vernd íslenska
hrossastofnsins fyrir fjársterkum
kaupendum erlendis.
Verða kartöflur fluttar út?
í ályktun um kartöflurækt, sem
samþykkt var beinir Búnaðarþing
því til Grænmetisverslunar land-
búnaðarins að vinna af alefli að því
að tryggja aukið rekstraröryggi
kartöfluframleiðslunnar hér á
landi. Lagt er til að athugaðir verði
möguleikar á því að hefja fram-
leiðslu á fjölbreyttum iðnaðar-
vörum úr umframframleiðslunni,
þegar hún er fyrir hendi. Komið
verði á bættu skipulagi varðandi
móttöku og sölu kartaflna. Þá er
lagt til að fulltrúar kartöflubænda
eigi aðild að stjórn Grænmet-
isverslunarinnar. í lok álykt-
unarinnar er lagt til að nú þegar
verði gerðar ráðstafanir til að
koma framleiðslunni í verð, m. a.
með öflun markaðar erlendis.
Fæðingarorlof bændakvenna.
Eftirfarandi ályktun var samþykkt
uni fæðingarorlof:
„Búnaðarþing telur, að fram-
tíðarmarkmið um fæðingarorlof
sé það, að allar konur hafi jafn-
an rétt til fæðingarorlofs og
búseta eða störf skipti þar ekki
máli.
Þingið beinir því til Stéttar-
sambands bænda, að það gæti í
þessu máli hagsmuna bænda-
kvenna svo, sem unnt er.
Meðan framkvæmd núgild-
andi laga um fæðingarorlof er í
mótun, telur Búnaðarþing að
lágmarks meðaltals réttindi
bændakvenna til fæðingarorlofs
séu tveir mánuðir og fullt orlof
eða þrír mánuðir, til þeirra
kvenna er sannað geta vinnu-
framlag við búrekstur, sem
nægir til fullrar orlofsgreiðslu.“
Kornrækt
Undanfarin ár hafa verið gerðar
tilraunir með kornrækt á ýmsum
stöðum á Suðurlandi. Árangur
þessara tilrauna bendir eindregið
til þess að til eru þær sveitir hér á
landi þar sem rækta má bygg með
góðum árangri í flestum árum.
Búnaðarþing samþykkti ályktun
þar sem stjórn Búnaðarfélags ís-
lands er hvött til þess að beita
áhrifum sínum til að auka korn-
rækt meðal bænda, þar sem
veðurfar og landshættir leyfa.
Hlunnindi.
Búnaðarfélag íslands hefur sér-
stakan hlunnindaráðunaut en
hann er Árni G. Pétursson, fyrr-
verandi sauðfjárræktarráðunaut-
ur. Hann hefur lengi barist fyrir
aukinni nýtingu hlunninda og að
þeim sé meiri sómi sýndur. Álykt-
un var afgreidd frá Búnaðarþingi
um skipulagða vinnslu rekaviðar.
Búnaðarfélög og ræktunarsam-
bönd á þeim svæðum þar sem
rekavið er að finna eru hvött til að
Fremst á myndinni silja búnaðarþingsfnlltrúarnir, Jón Kristinsson í Lambey, Júlíus Jónsson í Norðurhjáleigu, Gunnar
Oddsson í Flatatungu og Jósef Rósinkarsson í Fjarðarhorni.
264 — FREYR