Freyr - 01.04.1981, Page 32
Jón G. Jónsson
Steinadal
Afkoma búnaðar-
sambandanna fer versnandi
Afundi formanna búnaðarsambandanna, sem haldinn varí
Reykjavík 5. febrúar, 1981 varm.a. rættum versnandifjár-
hag búnaðarsambandanna. Áfundinum varlesin uppgrein-
argerð um fjármál Búnaðarsambands Strandamanna eftir
gjaldkera þess, Jón G. Jónsson í Steinadal. Þar sem sama
þróun hefur orðið í fjárhagsafkomu búnaðarsambandanna
um land allt, leitaði Freyr eftir því að fá að birta þessa
greinargerð og veitti Jón góðfúslega leyfi sitt til þess.
í örfáum orðum verður hér
leitast við að greina frá fjármálum
B.S.S., einkum þó um öflun tekna
og ráðstöfun þeirra; hverjar hafa
orðið breytingar í þeim efnum á
síðustu árum og hverju þarf að
breyta á næstu árum.
Hin allra síðustu ár hefur þurft
að afla stöðugt meiri hluta tekn-
anna heima í héraði.
Eftirfarandi töflur sýna, hvaðan
tekjur B.S.S. koma árin 1977 og
1980. Þær síðari eru bráða-
birgðatölur, sem kunna að
breytast örlítið:
Rétt er að geta þess, að árið 1980
voru lausráðnir tveir starfsmenn
hjá B.S.S. meðan héraðsráðu-
nautur var erlendis við nám.
Launakostnaður þeirra varð kr.
1 167 000 en af því borgaði B.í.
kr. 373 511.
Kemur þar að einu atriði sem
virðist ábótavant. Héraðsráðu-
nautum er heimilt að fara í frí í þrjá
mánuði á fullum launum á 5 ára
fresti. Ekki hefir verið gert neitt til
þess að tryggja búnaðarsambönd-
unum fjárhagslega aðstöðu til að
lausráða menn í þeirra stað. Eink-
um virðist það þó undarlegt eins og
nú er háttað framleiðslumálum ís-
lenskra bænda, þegar litið er til
þess að hinn fastráðni starfsmaður
fer til náms í þeirri grein, sem talin
er nú einna líklegust sem aukabú-
1977 1980
Heildartekjur: Greiðslur B.f. v/ráðunauta að meðt. ferða- kr. 4 421 678 kr. 16 200 000
kostn. og launask 35.3% 34%
Greiðsla úr Búnaðarmálasjóði 16.5% 12.9%
Starfsfé og mælingafé 8.3% 7.6%
v/sauðfjárræktarfélaga og jarðarb 16.7% 15.2%
Tekjur aflað heima í héraði 22.2% 30.3%
grein á íslandi. B.í. hefir sýnt full-
an skilning á þessu máli. Það sýnir
afstaðaþess, en betri erréttur við-
komandi búnaðarsambands en
fjárvana skilningur.
Ráðstöfun tekna B.S.S. árin
1977 og 1980 var sem hér segir
talin í hundraðshluta heildar-
gjalda. Sjá töflu á næstu síðu.
Hér eru talin með í launum hér-
aðsráðunautar, laun lausráðinna
starfsmanna kr. 1 167 000. Þar á
móti kemur að yfirvinna varð
minni, en ella hefði orðið, svo að
láta mun nærri að heildar útgjöld
hefðu orðið um kr. 1 000 000
lægri ef ráðunautur hefði ekki
tekið starfsfrí á árinu. Þá hefðu
83.5% heildarútgjalda orðið
vegna starfa hans. Hér er því um
ákveðna þróun að ræða. Kostnað-
ur vegna starfa hérðasráðunautar
hefur vaxið verulega. Hjá B.S.S.
má rekja þessa hækkun til kjara-
samnings frá 19. febrúar 1979, en
samkvæmt honum var fyrst farið
að greiða yfirvinnu sérstaklega. I
þessum samanburði gætir ekki
úrskurðar Kjardóms um 6%
hækkun launa til þeirra er taka
laun eftir launakerfi B.H.M.
Þannig er ljóst að enn mun þessi
gjaldaliður hækka í hlutfalli við
heildargjöld að óbreyttri starf-
semi.
272 — FREYR