Freyr - 01.04.1981, Page 35
Ræktun nytjaskóga
Það þótti söguleg stund á Bún-
aðarþingi þegar eftirfarandi álykt-
un var samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum.
f>ó að fjölmargir bændur hafi
jafnframt verið í fremstu röðum
skógræktarmanna er því ekki að
leyna að stundum hafa forystu-
menn skógræktar- ogbúnaðarmála
ekki kunnað hvern annan að meta.
Ályktun:
Búnaðarþing telur að hefjast beri
handa um ræktun nytjaskóga á
völdum stöðum, sem víðast um
landið og beinir því til búnaðar-
sambanda í þeim héruðum, sem
álitlegust eru til skógræktar, að
koma á samstarfi bænda um skóg-
arbúskap eftir ákveðinni áætlun,
sem gerð yrði fyrir viðkomandi
héruð, (hliðstætt Fljótsdalsáætl-
un).
Þingið álítur, að verulegur
stuðningur verði að koma til þess-
arar starfsemi af hálfu ríkisins og
skorar á Skógrækt ríkisins og
Framkvæmdastofnun ríkisins að
styðja þessa starfsemi myndarlega
og efla á þennan hátt atvinnulíf
sveitanna. Skorar þingið á
sveitarfélög og samtök þeirra að
styðja þetta starf, sem auka mundi
verulega atvinnu- og framtíðar-
möguleika í sveitum.
Greinargerð:
Ástæða er til að fagna þeim
árangri, sem náðst hefur í skóg-
rækt í Fljótsdal samkv. Fljótsdals-
áætlun.
Má segja, að þar sé hafinn skóg-
arbúskapur meðal bænda á ís-
landi.
Nú eru margir fleiri staðir í
landinu heppilegir til skógræktar,
og hafa ýmsir skógarreitir áhuga-
manna sannað, að víða má rækta
nytjaskóg með góðum árangri.
Arður af skógarbúskap skilar
sér ekki fyrr en 15 til 40 árum eftir,
að landið er tekið til ræktunar.
Því verður þjóðfélagið að styðja
þetta starf og efla um Ieið atvinnu í
sveitum.
í flestum löndum eru skógrækt-
arverkefni að verulegu leyti styrkt
eða kostuð af ríkinu, t. d. er í
Noregi veitt ríkisframlag 75% af
stofnkostnaði við skóg.
Hér er þessu máli beint til
bænda og búnaðarsambanda og
hvatt tii samvinnu þeirra og
Skógræktar ríkisins að þessu
framtíðarmáli.
BÆNDUR
Smíðum: framleiðum:
FLÓRGRINDUR HLIÐGRINDUR
MILLIGERÐI LEIKTÆKI
KERRUR
VAGNA
ÖLL NÝSMÍÐI
ALLSKONAR
SUÐUVINNA
TILBOÐ — TÍMAVINNA
LISTSMIÐJAN HF.
SKEMMUVEGI 16 PÓSTHÓLF 4309 SÍMI 75502
FREYR — 275