Freyr - 01.06.1981, Page 19
LAXAGENGD OG VEIÐIÁLAG í ELLIÐÁNUM 1935-1976.
Samhengi heildarlaxagöngu og veiðiálags í Elliðaánum árin 1935—1976. Pvístœrri sem laxugangan er íána, þeim mun minna
veiðist af henni hlutfallslega. Sveiflur í laxagöngum eru þess vegna meiri en sveiflur í afla. (Byggl á Mundy o. fl., 1978)
Nákvæmar skýrslur um veiði í
þessum ám eru til allt frá árinu
1956, ásamt þyngdardreifingu og
kynjaskiptingu aflans. Sé þyngd
laxins þekkt, er með talsverðu ör-
yggi hægt að geta sér til um sjáv-
araldur, án þess að rannsaka
hreistrið. Hlutfall hængaoghrygna
er mjög mismunandi í einstökum
ám og milli ára. Ekki er vitað
nákvæmlega hve stór hluti laxa-
göngunnar veiðist hverju sinni.
Pað hlutfall er sjálfsagt breytilegt
milli einstakra ára, enþað er einnig
háð stærð göngunnar í hverri á fyrir
sig. Mynd 3 er byggð á upplýsing-
um úr Elliðaánum, árin 1935—
1976. (Mundy o. fl. 1978) Meðal-
veiðiálag tímabilsins er um 37%,
en myndin sýnir einnig að hlutfalls-
lega meira veiðist þegar göngur eru
litlar og öfugt. Þetta er ekki óeðli-
legt, því sókn er svipuð frá ári til
árs, óháð stærð laxagöngunnar. í
okkar rannsókn var gert ráð fyrir
33% veiðiálagi í ánum öll árin.
Fjöldi móðurfiska og nýliða var
reiknaður út frá veiðinni í samræmi
við það. Móðurfiskur (P/2) var
mældur í fjölda hrygna tveggja ára
úr sjó og eldri, og sú regla viðhöfð
að láta tvær hrygnur 1 árs úr sjó
gilda sem eina tveggja ára. Þetta er
gert til samræmis, vegna þess að
fjöldi hrogna er mjög háður stærð
fisksins. Par sem hlutfall hænga og
hrygna er mjög misjafnt, þótti rétt
að nota hrygnufjölda sem mæli-
kvarða á stærð hrygningarstofns-
ins. Fjöldi nýliða er mældur sem
heildarganga úr sjó. Við útreikning
á fjölda nýliða var gert ráð fyrir að
helmingur hrogna yrði gönguseiði
á þrem sumrum og helmingur á
fjórum, þannig að nýliðar úr
hrogni sem hrygnt er haustið n,
skili sér 50% sem eins árs lax úr sjó
árið n+5 og 50% sem eins árs lax
úr sjó árið n+6, sömuleiðis að
50% tveggja ára laxa úr sjó árið
n+6 og 50% tveggja ára laxa úr sjó
árið n+7 hafi verið hrogn árið n.
M. ö. o. laxar heimtast úr sjó 5, 6
og 7 árum eftir að hrygning þeirra
fór fram.
Við útreikning á skiptingu aflans
í 1 og 2 ára lax úr sjó, var viðhöfð
sú regla að lax allt að 7 pundum (1
pund = 500 gr) taldist 1 árs úr sjó
og lax 7,5— 14 pund tveggja ára úr
sjó. Þyngri laxar voru ekki reikn-
aðir með nýliðum, enda fáir, en
hrygnur 14,5 pund eða meira voru
þó taldar sem móðurfiskar.
Niðurstöður
Niðurstöður eru sýndar í myndum
4—8. Staðsetning hvers punktar
miðað vð lárétta ásinn sýnir stærð
hrygningarstofnsins ákveðið ár og
lóðrétta staðsetningin sýnir hve
margir laxar gengu í ána síðar úr
FREYR — 419