Freyr - 01.06.1981, Blaðsíða 25
Einar Hannesson
Laxveiðin 1980
Laxveiðin 1980 hér á landi varð alls 52 137 laxar að
heildarþunga 248 492 kg, samkvæmt upplýsingum Veiði-
málastofnunar. Erþetta 19% minni veiði en meðaltaláranna
1970—1979 og verður árið 1980 11. í röð bestu laxveiðiára
hérlendis, en erþó 28% betra en mesta veiðiárið fyrir 1970.
Hlutur stangveiði í lieildarveiði var 58% og er það lægra
hlutfall en um langt árabil. Hafbeitarstöðvarnar áttu 6% í
veiðinni eða 3 138 laxa og hitt fékkst í netin eða 36%.
Meðalþyngd á laxi að þessu sinni
var ákaflega góð eða 9.6 pd, en
það er hæsta meðalþyngd sem um
getur. Meðalþyngdin í einstökum
kjördæmum var mest á Norður-
landi eystra eða 11.4 pd og hvað
einstakar ár varðar, hæst í Laxá í
Aðaldal eða 12.4 pd. Vatnsdalsá í
Húnavatnssýslu fylgir fast á eftir
Laxá með 12.3 pd meðalþyngd á
laxi. Þriðjungur ánna var með lax
að meðalþyngd 10 pd eða hærri.
Netaveiðin var yfirleitt góð og
mun betri hlutfallslega en stang-
veiðin, en misjöfn eftir veiðijörð-
um og gildir það fyrst og fremst um
Ölfusár-Hvítársvæðið, annað að-
alnetasvæði landsins, hitt er Hvítá í
Borgarfirði. Á fyrrnefnda svæðinu
var óvenjulegt ástand í vatns-
rennsli ánna, eins og minnisstætt
er, og olli hinn mikli leirframburð-
ur úr Hagavatni hægari göngu
laxins upp árnar en venja er, og
virtist laxinn stöðvast um tíma á
neðstu svæðunum.
Stangveiðin var ærið misjöfn
eftir ám en það á sínar skýringar. í
árnar gekk töluvert af vænum laxi,
en hins vegar kom mun minna af
smálaxi en venja er. Þannig var
hlutdeild ársfisks úr sjó, 4—6 pd
að þyngd, 28%, en meðaltal árs-
fisks 10 síðustu ára þar áður var
55%. Skort á smærri fiskinum má
vafalaust rekja til hins kalda
veðurfars 1979. Þá olli lág vatns-
staða í ám víða veiðitregðu. Léleg
veiði yfirleitt í ám þar sem
4—6 pd fisks gætir mest í aflanum,
en árnar með vænni fisk skiluðu
hins vegar yfirleitt góðri veiði.
Hæsta stangveiðiáin að þessu
sinni var Laxá í Aðaldal með 2 324
laxa að meðalþyngd 12.4 pd, önn-
ur í röðinni var Þverá í Borgarfirði,
en þar veiddust 1 938 laxar að
meðalþyngd 9.8 pd. Þriðja hæsta
áin var Miðfjarðará í Húnavatns-
sýslu og fengust þar 1 7141axar, en
meðalþyngd var 10.3 pd, en fjórða
var Norðurá í Borgarfirði með
1 583 laxa að meðalþyngd 7.6 pd
og fimmta áin var Víðidalsá og
Fitjaá í Húnavatnssýslu, en þar
komu á land 1 423 laxar að með-
alþyngd 11.6 pd.
Á vatnasvæði Hvítár í Borgar-
firði veiddust alls 11 325 laxar sem
er 21% lakari veiði en meðaltal
áranna 1970—79. Hlutdeild net-
anna í veiðinni var 52%. Stang-
veiðin 48%.
Stangveiðin var hins vegar 30%
lakari en fyrrgreint meðaltal. Á
Ölfusár-Hvítársvæðinu fengust
alls 11 662 laxar og var hlutur net-
anna í þeirri veiði 94%. Stang-
veiðin brást alveg í Ölfusá og að
mestu í Hvítá og bergvatnsárnar
gáfu lakari veiði en um langt skeið.
I hafbeitarstöðvarnar komu alls
3 138 laxar. í Kollafjarðarstöðina
gengu úr sjó 2 580 laxar, í Lárós-
stöðina komu um 400 laxar, 120
laxar komu í fiskhaldsstöðina í
Botni í Súgandafirði og tæplega 40
laxar úr hafbeitartilraun skiluðu
sér í Fossá í Skagafirði.
Laxveiði á íslandi eftir kjördæmum 1980
Fjöldi Pyngd Meðalþyngd Nei Stöng
Kjördæmi: laxa kg kg % fjöldi fjöldi
Reykjanes .................... 5 025 15 199 3.0 9.6 2 581 2 444
Vesturland ................... 17 237 67 007 3.9 33.0 6 363 10 874
Vestfirðir ........................... 1 557 17 129 4.6 3.0 153 1 404
Norðurland vestra .................... 8 062 42 862 5.3 15.5 376 7 686
Norðurland eystra .................... 5 306 30 212 5.7 10.2 258 5 048
Austurland ........................... 1 718 8 997 5.2 3.3 20 1 698
Suðurland .................... 13 232 67 086 5.0 25.4 12 379 853
52 137 248 492 4.8 100.0 22 130 30 007
42% 58%
FREYR — 425