Freyr - 01.06.1981, Síða 34
að bændur fái fullt verð fyrir fram-
leiðslu sína á yfirstandandi verð-
lagsári.
Staða mjólkurframleiðslunnar.
Fyrstu þrjá mánuði þessa árs var
mjólkurframleiðslan 12,7% minni
en sömu mánuði árið áður. Á
tímabilinu 1. sept. 1980 til 31.
mars 1981 varframleiðslan 13,7%
minni en ári áður. Birgðir smjörs
hinn 31. mars sl. voru 578 tonn,
sem er 56,8% minna en á sama
tíma árið áður. Birgðir osts voru
391 tonn hinn 31. mars sl. og
höfðu minnkað urn 42,6% á sama
tíma.
Kúasæðingar árin 1979—1980.
Fjöldi fyrstu sæðinga kúa árið
1979 var 30.690 en árið 1980voru
þær 29.166 og fækkaði því um
1524. Eftirtektarvert er, hve sæð-
ingar hafa jafnast á mánuði árið
1980 miðað við árið 1979. Þannig
voru 18,2% sæðinga ársins 1979
gerðarí júlímánuði, en 15,5% íjúlí
1980. Fæstarsæðingarvoruíoktó-
ber 1979 eða 3,6% en 5,2% í
október 1980. Breytingar aðra
mánuði eru hliðstæðar.
„Veiði og vötn“
Fyrir skömmu kom út annað hefti
af ritinu „Vötn og veiði“. Útgef-
andi er Landssamband veiðifélaga
en Hinrik A. Þórðarson annaðist
ritstjórn. í fyrra hefti er skrá um
veiðivötn á Suður- og Vesturlandi.
í síðara heftinu eru tekin fyrir 45
veiðivötn á svæðinu frá norðan-
verðu Snæfellsnesi, um Arnar-
vatnsheiði, Dalasýslu, Vestfirði,
Húnavatns- ogSkagafjarðarsýslur.
Á hverri blaðsíðu er að finna
upplýsingar um eitt vatn, þar er
einnig birtur uppdráttur af vatn-
inu. Getið er um stærð vatnsins,
hvaða veiðimöguleikar eru, hvar
fást veiðileyfi og oft er getið um
hvaða verð var á leyfum fyrir einn
dag á síðastliðnu ári. Þá ergetið um
gistiaðstöðu, sem getur verið
veiðihús, hótei eða tjaldsvæði.
Fyrir áhugafólk sem gaman hefur
að renna fyrir silung, þá eru þetta
mjög gagnlegir bæklingar. Þeir eru
seldir í flestum bókaverslunum
landsins. Það er hægt að panta
bækiingana á skrifstofu Lands-
sambands veiðifélaga í Bændahöll-
inni, sími þar er 15528.
Hrosshár
Búvörudeild SÍS hefur í nokkur ár
flutt úr hrosshár til Þýskalands,
sem einkunt er notað við pensla-
gerð. Eftirspurn virðist nú vera að
aukast því að óskir hafa borist um
meira magn erlendis frá en verið
hefur.
Sambandsfréttir.
Bændaorlof á Hvanneyri
Sumarið 1980 var í fyrsta sinn efnt til bændaorlofsvikna á Hvanneyri.
Þessar orlofsvikur, sem voru tvær, þóttu velheppnaðar og því áformað að
taka þráðinn upp að nýju í sumar vikurnar 21.—27. júní og 16.—22.
ágúst. Verði mikil þátttaka er unnt að bæta þriðju orlofsdvölinni við í
ágúst.
Dagskrá orlofsvikunnar mótast af áhuga dvalargesta en skólanum
þykir rétt að gera eftirfarandi tillögur:
Sunnudagur:
Mánudagur:
Þriðjudagur:
Þriðjudagur:
Miðvikudagur:
Fimmtudagur:
Fimmtudagur:
Föstudagur:
Laugardagur:
Mæting fyrir kvöldverð kl. 1900.
9°o—12oo Hvanneyri skoðuð.
Bútækni.
Hópferð.
Búfjárrækt.
Jarðrækt.
Hópferð.
Heimsókn frá Stéttarsambandi bænda.
Brottför eftir morgunverð. _
900_1200
1330—1900
goo_Í200
900_12°o
noo—ígoo
D valarkostnaður á þátttakanda er áætlaður kr. 1.400 og er þá innifalið
fullt fæði, gisting á 2ja manna herbergjum með uppbúnum rúmum og
ferðakostnaður í hópferðum. Börn fá 40% afslátt.
í hópferðunum verður farið um sögustaði í Borgarfirði, heimsótt
fyrirtæki og skoðuð bændabýli.
Frekari upplýsingar fást í síma 93-7000 og þar er einnig tekið á móti
pöntununr.
Míignús B. Jónsson,
skólastjórí.
434 — FREYR