Freyr - 01.06.1981, Síða 35
Rósberg G. Snædal:
Skrjáf í skræðum
Blásnauður guðsmaður
Porkell Ólafsson (biskups Gísla-
sonar í Skálholti) var lengi dóm-
kirkjuprestur á Hólum, einnig
stiftprófastur og gegndi starfi bisk-
ups eftir að Sigurður Stefánsson,
síðasti kjörni Hólabiskupinn lést,
20. maí 1798, þar til stóllinn var
lagður niður með konungsbréfi frá
2. okt. 1801. Séra Þorkell söng yfir
moldum tveggja Hólabiskupa,
þeirra Sigurðar Stefánssonar og
Jóns Teitssonar. Þorkell sagði af
sér stiftprófastsembætti 1808. Var
þá staðurinn mjög niðurníddur og
séra Þorkell lifði við sult og seyru
næstu árin. Segir svo í Annál 19.
aldar: „Þorkell stiftprófastur á
Hólum var bersnauður orðinn.
Hafði hann þá oftast lifað mjög
einmana og í einhýsi í nýju timbur-
stofunni á Hólum í mörg ár við hið
mesta munaðarleysi og stundum
skarpan kost. Oftar en sjaldnar er
sagt það hafi borið við, að hann
hefði eigi annað til miðdegisverðar
en eldhúsreyktan hákarl, er hann
keypti blautan, og það af svo
skornum skammti, að 5 lóð sagðist
hann ætla sér í mál, og sagði sællífi
ef hann hefði brauðbita með. (32
lóð = 1 pund. Séra Þorkell hefur
því borðað sem næst 80 gr. í mál.)
Eftirlaun fengust engin. Var þá í
tilgátum og eigi annað sjáanlegt en
þessi góði öldungur mundi veslast
upp af harðrétti og annarri vesöld.
Þótti nú ævi hans mjög breytt og
umhugsunarverð. Hörmuðu það
margir. — Var þá í ráðagjörð, að
þeir fáu, er skást voru megnandi af
prestum, lögðu saman í einhvern
Iítinn forða handa honum, en það
lenti við ráðagjörðina eina saman.“
Þorkell sagði af sér prests-
embættinu árið 1816. Þá hafði
amtmaðurinn á Möðruvöllum
klagað hann og borið þungum
sökum fyrir embættisafglöp og
vanrækslu í barnauppfræðslu í
bréfi til biskupsins yfir íslandi, hr.
Geirs Vídalín. Eftir að séra Þorkell
hafði sagt af sér öllum embættum,
miskunnaði kóngurinn sig yfir
hann og lét hann fá 50 ríkisdali á
ári í eftirlaun. Þorkell dó á Hólum
29. jan. 1820, 82 ára að aldri.
Séra Þorkell var giftur Ingigerði
Sveinsdóttur (lögmanns Sölvason-
ar). Þegar þau gengu í það heilaga,
var þessi staka gerð:
Síra Þorkell sér við hlið
setur Ingigerði.
Hann á betra heldr en við,
honum gott af verði.
En séra Þorkell naut hennar víst
skammt. Hún mun hafa dáið ung.
Einn son áttu þau amk., Sölva, er
prestur var í Hofsstaðaþingum í
Skagafirði, d. 1850. Hann bjó á
Hjaltastöðum og Hjaltastaðakoti í
Blönduhlíð, en var þó oft aðeins í
húsmennsku. Þótti búmaður lítill.
Heimildir: Annáll 19. aldar og
Biskupasögur.
R. G. Sn.
»1 v)
kiiniwylL -J islt'inki
fódurblöndmi k({Ugliiii iirrals kjetrufóóur
FÓÐUR
fóðriÓ sem bœndur treysta
EIGUM ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI:
MELASSAKLÍÐ
Góð vörn gegn súrdoða.
KÖGGLAÐ MAGNÍUMSALT
Dregur úr hættu á grasdoða.
FÓÐURGER
Mjög auðugt af B-vítamíni.
MIKRO D
Alhliða steinefnablanda - köggluð.
MIKRO F
Fosfórrík steinefnablanda - köggluð.
h
MJOLKURFELAG
REYKJAVf KUR
Laugavegi 164. Simi 11125. Sundahöfn Sími 822 25
FREYR — 435