Freyr - 01.07.1985, Qupperneq 12
500 Freyr
Grélar Einarsson sérfrœdingur skýrir
húsvistartilraunir fyrir gestum.
Magnús B. Jónsson kennari i búfjárfræði
og Jón Halldórsson fjósameislari glugga í
kúaskýrslurnar.
Ólafur Guðmundsson deildarstjóri segir
frá búvélaprófunum. Ólafur lést fyrir
aldur þann 26. maí sl.
til þess að kunna að búa vel eða
réttindanna vegna heldur líka
kjarabráttunnar vegna. í vetur
stunduðu nám 118 nemendur í
bændadeild skólans, 27 stúlkur og
91 piltur.
Magnús B. Jósson sagði frá
námi og starfi í Búvísindadeild í
fjarveru Ríkarðs Brynjólfssonar
deildarstjóra. Búvísindadeildin
hét áður Framhaldsdeildin, en
hún var stofnuð árið 1947 sem
vísir að landbúnaðarháskóla með
tveggja vetra námi. Frumkvæði að
stofnun deildarinnar átti Guð-
mundur Jónsson þáverandi skóla-
stjóri. Framhaldsdeildinni, nú Bú-
vísindadeild, var og er ætlað að
mennta leiðbeinendur í landbún-
aði. Þessi menntastofnun hefur
gegnt merkilegu hlutverki í sögu
íslensks landbúnaðar. Bændaskól-
inn og Búvísindadeildin starfa nú
samkvæmt lögum frá 1978. Búvís-
indanám er nú metið sem fjögurra
ára háskólanám. í vetur voru tíu
nemendur í Búvísindadeild þar af
átta á fyrsta ári.
Magnús Óskarsson kennari
greindi frá tilraunastarfseminni
við skólann. Þar hafa farið fram
umfangsmiklar tilraunir í jarð-
rækt, þar sem rannsökuð er jarð-
vinnsla, notkun áburðar, stofnar,
sláttutími, grænmetisræktun og
fleira. Umsjón með jarðræktartil-
raunum hefur Ríkharður Brynj-
ólfsson. Einnig eru gerðar tilraun-
ir í búfjárækt, t. d. með frjósemi
sauðfjár, beit á ræktað land og
fóðurtilraunir í sambandi við
rannsóknir á sláttutíma og ræktun.
Jón Viðar Jónmundsson hefur
stjórnað búfjárræktartilraununum
undanfarin ár, en nú er Magnús
B. Jónsson að taka við þeim.
Þá hafa verið gerðar á Hvann-
eyri tilraunir með heyverkun
undir stjórn Bjarna Guðmunds-
sonar og Péturs Þórs Jónassonar.
Loks stunda nemendur nokkuð
rannsóknir í sambandi við náms-
ritgerðir sínar. Alls eru nú unnin
sjö ársverk við rannsóknir og sl. ár
var unnið að búrannsókna-
verkefnum.
Að lokum talaði Sveinn Hall-
grímsson skólastjóri og ræddi um
hlutverk Bændaskólans á Hvann-
Margir nemenda koma með hesta sína og hafa þá á Hvanneyri.