Freyr - 01.07.1985, Blaðsíða 16
Fákar á ferð. (Ljósm. Jónas Jónsson).
Kristinn Hugason
Fxjósemi og skyldir þættir
í íslenska hrossastofninum
Telja má að íslenski hesturinn hafi nú unnið sér œvarandi fótfestu í tækniheimi okkar.
Af ræktun hans hefur nokkur fjöldi bœnda tekjur en þar œttu þó að vera möguleikar á
meiru sé rétt að verki staðið. í hrossaræktinni sem og annarri búfjárrækt eru
vísindalegar rannsóknir einn af hyrningarsteinum framfara. A því sviði hefur lítið verið
aðhafst og ekki frekar erlendis en hérlendis en þó hefur örlað á breytingum hér,
innanlands og utan.
í erindi því sem hér fer á eftir eru
birt fáein helstu atriði úr B.Sc.
ritgerð höfundar frá Búvísinda-
deildinni á Hvanneyri. Ritgerðin
nefnist: „Könnun á frjósemi og
skyldum þáttum í íslenska hrossa-
stofninum." Skal til hennar vísað
um heimildir.
í rannsókn þessari voru þættirn-
ir frjósemi, kynhlutfall, tíðni tví-
504 Freyr
burafæðinga og aldursdreifing og
ættliðabil stóðsins athugaðir, og
einnig var notkun verðlaunaðra
hrossa hérlendis athuguð. Þetta
var frumrannsókn flestra þessara
þátta en niðurstöður rannsóknar
þessarar gera kleift, með notkun
upplýsinga úr vissum erfðafræði-
legum rannsóknum á íslenskum
hrossum, að hefja gerð eins konar
kynbótaáætlunar fyrir þetta búfé
okkar. Slík áætlun ætti að geta
veitt dygga aðstoð við að svara
fjölda spurninga sent nú eru
brennandi.
Frumgögn.
Frumgögn þau sem úr var unnið
voru skýrslur um notkun stóð-
hesta í deildum hrossaræktar-