Freyr - 01.07.1985, Blaðsíða 19
Svala frá Ásgeirsbrekku með folaldið sitt.
erlendra þótt hún reyndar lækki
um of með vaxandi notkun þeirra,
sjá mynd 1. Erlendis er talið að
frjósemi stóðhestanna sé óháð
aldri þeirra en frjósemi meranna
sé aftur háð því hversu gamlar þær
eru.
I athuguninni var reiknað að-
hvarf fanghlutfalls hryssa í aldurs-
flokkum að aldri þeirra. Niður-
stöður reikninga urðu að neikvætt
samband reyndist með aldri
hryssa og frjósemi (marktækni við
P = 0,1), virtist vera um boglínu-
samband að ræða.
Sé raunin sú að frjósemi hryssa
lækki með aldri eftir boglínu og
eldri hestar fái til jafnaðar eldri
hryssur eins og í ljós kom þegar
aldursdreifing stóðsins var skoðuð
(sjá þar) gæti það verið skýring
þeirra annarsveldisáhrifa aldurs
stóðhesta á fyljunarprósentur
þeirra er fram komu. Eru þá
niðurstöður þeirra þátta er síðast
hefur verið um rætt í fullu sam-
ræmi við erlendar athuganir þess-
ara þátta.
í töflu 1 hér á undan sjást
niðurstöður útreikninga á frjó-
semi hryssa. Fanghlutfall hryssa er
reiknað út á sama hátt og stærðin
fyljunarhlutfall stóðhesta, mis-
munur þessara mælikvarða liggur í
mismun þess út frá hverju er hugs-
að og í yfirleitt mjög ólíkri notkun
þeirra. Raunverulegt fanghlutfall
er sá mælikvarði sem best tekur til
þeirrar skilgreiningar frjósem-
innar sem hér er miðað við. Fol-
öld til nytja eftir hverjar 100
hryssur sem er haldið hefur í raun
mesta hagfræðilega þýðingu.
Séu tölugildin í töflu 1 borin
saman við sambærilegar tölur er-
lendar þá sést berlega hve tölurn-
ar unt frjósemi íslenskra hryssa
eru mikið hagstæðari en þær er-
lendu eru. Hér á landi virðast þó
fleiri folöld misfarast yfir sumar-
tímann en sums staðar erlendis.
2. Kynhlutfall.
í könnun kynhlutfallsins kom
fram að raunhæft fleiri hestfolöld
en merfolöld fæðast og er það í
samræmi við erlendar niðurstöð-
ur, en hér komu ekki fram mark-
tækar bendingar um minni lífs-
þrótt karlkynsfolalda eins og þó
þekkist þar (sjá töflu 2).
Talla 2
Niöurstaða útreikninga á kynhlutfalli folalda. Byggt á tölum áranna
1978 og 1979.
Aldur Hundraðstala Hundraðstala Munur á niilli flokka
folalds hestfolalda merfolalda kij-kvaðrat
Nýfætt 52,47% 47.53% 10.66**
4—8 mánaða 52.39% 47.61% 9.79**
** = P(O.Ol)
Freyr 507