Freyr - 01.07.1985, Side 31
Jónas Magnússon
Uppsölum, Eiðaþinghá
Búnaðarfélag Eiðaþinghár 100
ára
Laugardaginn 13. aprílsl. efndu félagar í Búnaðarfélagi Eiðaþinghár til kvöldfagnaðar í
tilefni af því að öld er liðin síðan félagið var stofnað.
Sljórn Búnaðarfélags Eiðahrepps. Frá vinstri: Sigfús Porsteinsson, Fossgerði; Jónas
Magnússon, Uppsölum og Guðlaugur Þórhallsson, Ormsstöðum. (Ljósm. Kári
Jónasson).
Boðið var brottfluttum félags-
mönnum og mökum þeirra. Sáu
félagar í búnaðarfélaginu um öll
skemmtiatriði sjálfir, fluttu gam-
anmál, lásu upp og nokkrir þeirra
sungu saman fáein lög. Flutt var
ágrip af sögu félagsins sem Ragnar
Magnússon á Brennistöðum hafði
tekið saman. Fundargerðabækur
félagsins eru allar til og eru nú
varðveittar á Héraðsskjalasafninu
á Egilsstöðum.
Búnaðarfélag Eiðaþinghár var
stofnað fyrsta sumardag árið 1884
á Eiðum og var því 100 ára á sl.
ári. Helstu forgöngumenn að
stofnun þess voru Guttormur Vig-
fússon þáverandi skólastjóri Bún-
aðarskólans á Eiðum, sem þá
hafði starfað í eitt ár, og Jón
Þorsteinsson bóndi í Gilsárteigi.
Stofnfélagar voru 18 að tölu og
var Guttormur Vigfússon kjörinn
formaður. í stefnuskrá þess segir
svo: „Það er tilgangur félags vors
að efla og endurbæta búnaðar-
háttu manna og með samtökum
að styðja að öllu því er til framfara
má verða í verklegum efnum, svo
sem grasrækt á túni og engjum
með vatnsveitingum, framskurði á
mýrum, betri meðferð á áburði,
þúfnasléttun og túngarðahleðslu,
garðrækt, haganlegri húsaskipan
og varanlegri byggingu á þeim
húsum sem félagið leggur vinnu
til.
Einnig skal félagið eftir megni
stuðla að því er orðið gelur til
umbóta í kvikfjárrækt yfirhöfuð."
Óhætt er að segja að búnaðarfé-
lagið hefur alla tíð verið til mikilla
hagsbóta fyrir bændur í Eiðaþing-
há. Það hefur sýnt sig að miklu er
unnt að áorka ef samtakamáttur
og félagsandi fær notið sín.
Oft hafa félagsmenn lagt fram
dagsverk þegar mikið hefur legið
við til aðstoðar hver öðrum í stór-
framkvæmdum og við að bjarga
verðmætum.
Einkunnarorð félagsins hafa
ætíð verið: „Einn fyrir alla, allir
fyrir einn.“
Stjórn félagsins skipa nú:
Jónas Magnússon Uppsölum
formaður;
Sigfús Þorsteinsson Fossgerði
ritari;
Guðlaugur Þórhallsson Orms-
stöðum gjaldkeri.
Freyr 519