Freyr - 15.07.1986, Page 19
liant. í einn pels, stærð nr. 42,
þarf uni 26—34 skinn og kostar
hann núna í verslun hér heima frá
65 000—120 000 krónur.
Aðrar nytjar af dýrinu er kjöt-
ið. Bragðaðist það vel svona í
fyrsta sinn, en þykir lostæti hjá
sumum þjóðum. Pað er fitusnautt
og skrokkþungi er frá 5—8 kg.
Framtennur eru notaðar í skraut.
Eins og horfir í dag fyrir okkur
bændum um samdrátt í hinum
hefðbundnu búgreinum, tel ég
rétt við leitum allra ráða til að
geta verið heima hjá okkur og því
tel ég liggja á að kanna hvort við
gætum ekki haft fenjabjór sem
hliðarbúgrein þar sem refir og
minkar eiga ekki við. Ég tel þetta
vera spurningu um hvort við get-
um ekki notað grasið okkar, sem
er með því betra í Evrópu og þá í
heykögglum handa bjórnum.
Þarna tel ég að tilraunastöðvar
okkar og bændaskólar ættu að
hafa frumkvæði. Reynum bjórinn
og tökum til hendinni strax og
látum ekki reka á reiðanum í mörg
ár eins og alltof oft á sér stað.
Samtökin V. K. S. K. og yfirloð-
Stærsta andabú
í Evrópu
Er við Karl Sveinsson á Borgar-
firði eystra vorum að skoða vatna-
fuglasláturhús í Vestur-Þýskalandi
með Karli Behreno er sér um upp-
byggingu og markaðsmál á fugla-
afurðum í landinu komum við að
Bölts-andabúinu. Það var stofnað
árið 1937 og í dag er lífdýrastofn
þeirra 15 000 fuglar. í útungunar-
vélarnar eru sett allt að 70 þúsund
egg á viku. í búinu ala þeir sjálfir
upp um 35 þúsund fugla, en hitt
selja þeir til annarra. Þeir slátra
daglega um 10 000 fuglum 5 daga
vikunnar, kaupa af öðrum það
sem á vantar í lógun. Lógað er 2
milljónum á ári. Kjötið er mest
selt innanlands. Þeir reka eigin
fiður- og sængurgerð. Lappirnar
af öndunum eru seldar frystar til
Hong Kong. Þar þykja þær frá-
Sýningarsalur með búrum þar sem sýndar eru ýmsar tegundir lítilla húsdýra.
(Ljósmyndir: Örn K. Porleifsson).
dýralæknir Austur-Þýskalands eru
reiðubúnir til að aðstoða okkur á
allan hátt.
Að lokum langar mig að þakka
starfsfólki sendiráðs Austur-Þýska-
lands hér heima og formanni
V. K. S. K. Erwin Wegner fyrir
frábæra hjálpsemi og móttökur,
sendiráði Tékkóslóvakíu. heið-
urskónsúlnum Gisilu Maurer í
Hannover í Vestur-Þýskalandi,
stjórn Framleiðnisjóðs landbún-
aðarins fyrir þeirra framlag, svo
og búnaðarmálastjóra, að ferðin
1984 var farin.
Carina 2000, karlfugl.
bærar í andalappasúpu. Innyfli eru
nýtt í fóður; engu er hent. Þeir eru
með eigin fóðurstöð, er blandar
75 þúsund tonn á ári. Þar af nota
þeir til eigin þarfa 45 þúsund tonn.
Eftir ca. 10 ár hverfa þessi stórbú
því að skíturinn frá dýrunum er
svo mikill og vandamál hvað gera
á við hann. í Vestur-Evróþu er
mikill markaður fyrir kjöt, hvítt
kjöt. Við eigum að bregðast við
því. Ég er viss um að við eigum
möguleika.
Örn. K. Þorleifsson.
FREYR 571