Freyr

Árgangur

Freyr - 15.07.1986, Blaðsíða 25

Freyr - 15.07.1986, Blaðsíða 25
Ár 1986 Nr. 553 Ár 1986 Nr. 554 DNG-hitavakt Si Framleiðandi: DNG, Akureyri. YFIRLIT. DNG hitavakt frá DNG á Akureyri var reynd af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1985. Hitavaktin er ætluð til fjarmælinga á hita í heystæðum, en einnig má nota hana til annarra hitamæl- ing tengdum búrekstri. Aðalhlutar eru tengdir kassan- um með venjulegum rafleiðslum. Hitavaktinni fylgir móttakari sem tengdur er í venjulega innstungu á rafkerfi búsins. Móttakarinn gefur frá sér hljóðmerki ef hitastigið fer út fyrir svið sem notandinn getur stillt á mælikassanum. Tækið er tengt 220 volta rafstraum og sýnir með ljósstöfum hitastigið í hverjum hitanema fyrir sig. Hitanemunum er komið fyrir í heystæðu um leið og hirðing fer fram og verða þeir ekki fjarlægðir þaðan fyrr en heyið er leyst upp, oftast við gjafir að vetri. Mælitækið sýnir hitastigið í heyinu á afmörkuðum stöðum en fjöldi hitanema er þó tæpast nægur til að gefa öruggt yfirlit yfir hitafarið í stórum hlöðum. Við þurrheysgerð án súgþurrkunar er notagildi mæli- tækisins einkum sem aðvörunarbúnaður. Þar sem ein- ungis er blásið hita úr heyjunum má með þessari mælitækni fylgjast með að heyhitinn fari ekki upp fyrir tiltekin mörk. Við góða súgþurrkun með fasttengdum blásara kemur þessi mælitækni einkum að gagni eftir að reglulegum blæstri er hætt, til að kanna hvort einhvers staðar eigi sér stað hitamyndun. Við votheysgerð geta hitamælingar haft gildi m. t. t. hirðingarhraða og frágangi á stæðu eftir hirðingu. í gripahúsum þar sem þörf er á nákvæmri stjórnun hitastigs er hægt að nota tækið sem aðvörunarbúnað ef loftræstingin fer úr skorðum. Mælitækið reyndist traust og öruggt í notkun og nákvæmni hitanemann, sem notaðir voru, reyndist fullnægjandi við venjulegar hitamælingar í búrekstri. OLEO-MAC-heyhnífur Gerð: Oleo-Mac heyhnífur. Framleiðandi Oleo-Mac, Bangolo in Piano, Ítalíu. Innflytjandi: Glóbus hf., Reykjavík. YFIRLIT. Oleo-mac heyhnífurinn var reyndur af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins veturinn 1985- 1986. Heyskerinn hentar vel til heyskurðar bæði á votheyi og þurrheyi. Hann er knúinn með einfasa rafstraum með 1400 W mótor. Skurðhraðinn er um 1,7 m/mín við votheysskurð en allt að 2,7 m/mín í þurrheyi. Skurðdýptin er 40—50 cm. Rafmagnsnotkun er að jafnaði 4—7 amper. Vinnustaða við notkun á tækinu er fremur góð og tiltölulega auðvelt að stjórna því. í þéttu votheyi þarf að ýta tækinu niður með nokkrum þunga og sömuleiðis lyfta því upp úr skurðfari. Heyskurðurinn verður yfirleitt hreinn og hægt að skera alveg út að veggjum og örðum hindrunum. Ekki virðist sérstök slysahætta bundin við notkun tækisins ef notkunarregl- Frh. á bls. 579. áskrifandi að prófunarskýrslunum gegn vœgu koma úí en í mörgum tilvikum er óskað eftir eftir að gerast áskrifendur eða fá nánari Athugið: Að gefnu tilefni skal vakin athygli á því að unnt er að gerast árgjaldi. Áskrifendur fá sendar skýrslunar í heild um leið og þœr ýtarlegri upplýsingum en birtist hér í blaðinu. Þeir sem óska upplýsingar hafi samband við skrifstofu Bútœknideildar að Hvanneyri sími 93-7500. Freyr 57Z

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.