Freyr

Árgangur

Freyr - 15.07.1986, Blaðsíða 24

Freyr - 15.07.1986, Blaðsíða 24
RANNSOKNASTOFNUN LANDBUNAÐARINS Bútæknideild Hvanneyri. BÚVÉLAPRÓFUN Nr. 552 GUNDERSTED-mykjudæla Ár 1986 Nr. 551 Ár GUNDERSTED-mykjudreifari Gerð: Grundersted, type 4000 1. Framleiðandi: Maskin- fabriken Kimadan, Danmörku. Innflytjandi: Boði sf., Hafnarfirði. YFIRLIT. Grundersted mykjudreifarinn var reyndur af Bútækni- deild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins seinni hluta ársins 1985 og notaður alls um 100 klst. Dreifarinn er ætlaður til flutnings og dreifingar á þunnum búfjáráburði. Helstu hlutar hans eru stáltank- ur, burðarhjól og spaðadæla. Dráttarbeisli hans má tengja bæði í dráttarkrók eða fast beisli á dráttarvél. Jafnleiki dreifingar reyndist nokkuð háður þykkt mykj- unnar. Væri þurrefnisinnihald hennar minna en 8% varð dreifingin viðunandi góð en við um 11% þurrefni kemur mykjan úr dreifirörinu í einni samfelldri bunu. Til þess að lækka þurrefnismagnið niður í fyrrgreint mark (8—9%) þarf auk þvagsins 5—6 tonn af vatni á ári fyrir hvern grip í fjósi. Afköst við útakstur eru mjög háð þykkt mykjunnar og flutningsvegalengd, en eru oft á bilinu 6—12 tonn á klst. af þynntri mykju. Vinna með dreifaranum gengur í flestum tilvikum greiðlega fyrir sig og stjórnbúnaður er auðveldur í notkun. Ætla verður 40—50 kW (55—68 hö) dráttarvél fyrir hann. Á prófunartímanum komu ekki fram neinar bilanir eða óeðlilegt slit og í heild virðist dreifarinn vera nægilega traustbyggður. Gerð: Grundersted type 5“. Framleiðandi: Maskin- fabriken Kimadan, Danmörku. Innflytjandi: Boði sf., Hafnarfirði. YFIRLIT. Gundersted mykjudælan var prófuð af Bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið og haustið 1985 og notuð alls um 108 klst. Dælan er miðflóttaafldæla knúin frá aflúrtaki dráttar- vélar. Hún er ætluð til dælingar á þunnri mykju hvort heldur er í flutningatæki eða til blöndunar í haughúsum. Hún reyndist vel við flutning á þunnfljótandi mykju úr haughúsi í dreifara. Best hentar að nota dæluna í brunnhús á áburðarkjallara undir gripahúsi. Með dæl- unni má dæla upp úr allt að 3 m djúpum geymslum. Afköst hennar eru verulega háð þykkt mykjunnar. Flutningsgeta hennar reyndist vera allt að 5000 lítrar á mínútu við lágt þurrefnisinnihald mykjunnar. Aflþörf Frh. á bls. 579. 576 Freyr

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.