Freyr

Árgangur

Freyr - 15.07.1986, Blaðsíða 39

Freyr - 15.07.1986, Blaðsíða 39
Bjöm S. Stefánsson Búgreinafélög — kvenfélög Búgreinafélög Búgreinafélögin hafa hvert sínu hlutverki að gegna. Eftir sem áður eru mörg búnaðarmál innan sveit- ar og innan héraðs, sem varða fleiri en þá, sem stunda viðkom- andi búgrein. Búnaðarfélög sveit- anna og héraðssambönd þeirra, búnaðarsamböndin, verða því áfram vettvangur bænda til að fjalla um landbúnað almennt. Til þess að tryggja aðild bú- greina að búnaðarsamböndum hefur sums staðar verið tekið það ráð að heimila búgreinafélögum héraðsins að tilnefna fulltrúa á aðalfund. Koma þeir fulltrúar til viðbótar við fulltrúa búnaðarfé- laganna. Með þessu vinnst það, að menn ábyrgir í búgreinafélögum verða einnig ábyrgir, þegar fjallað er um mál búnaðarsambandsins. Sumum kann að þykja órétt- mætt, að sami maður geti þannig haft áhrif á kjör fulltrúa búnaðar- félags sveitar sinnar og fulltrúa búgreinafélags héraðsins og jafnvel fleiri en eins búgreinafé- lags. t>að þarf ekki að koma að sök. Mál eru sjaldan leyst með afli atkvæða á aðalfundum búnaðar- sambanda, heldur mun atkvæða- greiðsla oftast vera til að staðfesta samkomulag, sem náðst hefur með umræðu, þar sem öll sjón- armið hafa getað komið fram. Kvenfélög Heimilishald er búgrein, sem stunduð er á öllum bæjum. Þeir, sem þar hafa hagsmuna að gæta, hafa í flestum sveitum með sér félag, kvenfélag. Kvenfélögin hafa lítið farið út fyrir svið hús- mæðra og kvenna og látið þá, sem bera ábyrgð á útiverkum, um bún- aðarfélögin. Af ýmsum ástæðum væri til heilla, að konur létu meira að sér kveða í búnaðarfélögum heima í sveitum, í búnaðarsamböndum og í Búnaðarfélagi íslands og Stéttar- sambandi bænda. Það kynni að breyta áherslum á mál og það gæfi ásjónu sveitanna ferskari blæ að hafa konur meðal fyrirliða bænd- anna í landinu. Nokkuð er að losna um hefð- bundna skiptingu á ábyrgð bónda og húsfreyju. Því mætti fylgja eftir með því ákvæði, að í stjórn búnað- arfélags skuli sitja kona. Ýmsar reglur má setja til að framfylgja því. Sams konar ákvæði mætti setja um stjórn ibúnaðarsam- bands. Slík ákvæði þjónuðu sams konar tilgangi og ákvæði um sér- staka aðild búgreinafélaga að að- alfundi búnaðarsambands.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.