Freyr

Árgangur

Freyr - 15.07.1986, Blaðsíða 21

Freyr - 15.07.1986, Blaðsíða 21
Carina 2000 (Moskuönd, Carina moschata) Hvað er Carina? Vísinda- menn eru ekki á eitt sáttir, hvort um er að ræða önd eða gœs ogflokkast hún því með hvorugri tegundinni, en ég vil kalla hana gœs hér. Uppruni Carinu er í hitabelti Mið- og Suður-Ameríku. Upprunalegi litur hennar er svartur en með kynblöndun er Carinan orðin hvít. Einnig koma fram ýmis litaraf- brigði. Ég heimsótti sumarið 1984 tilraunabúið í Vogelsdorf við Sprewald í Austur-Þýskalandi. Þar var byrjað á ræktun Carinu árið 1968. Núna vinna þarna um 150 manns og fuglastofninn er um 60 þúsund í allt með ungum, en þeir þar unga út á ári um 750 þúsund ungum. Mestur hluti þeirra er seldur til smábænda. Þarna á tilraunastöðinni voru allar Carinu-kerlingar sæddar. Verptu þær að meðaltali um 120 eggjum á ári. Útungun tekur um 32 daga. Eftir 70 daga er kvenfugl- um lógað og vega þá skrokkarnir 1,4 kg, en körlum er lógað 77 daga og vega þá 2,7 kg. Er þeim lógað á þessum tíma vegna fóðurskipta, en annars eru fuglarnir látnir lifa í 21 viku og þá er þungi þeirra orðin allt að 4,5 kg. Úr útungunarvélunum koma 85 ungar af 100 eggjum sem sett eru í þær. Tilraunastjórinn, dr. Martin Beer bauðst til að taka nema frá íslandi ef einhver hefur áhuga. Ég hef mikinn áhuga á að gæsabænd- ur láti athuga nánar um þennan fugl og þá vegna þess að hann get- ur nýtt sér gras alltað 80% af fóðri sínu og verpir vel, allt að 120 eggjum á ári. Hann er bestur allra fugla til að liggja á eggjum sínum eða þeim sem sett eru undir hann. Hann er mjög fljótvaxinn og næst- um fitulaus, en ekki eins og endur sem framleiddar eru hér á inn- Carina 2000, karlfugl til vinstri en kvenfugl til hœgri. fluttu korni, lógað 50—60 daga gömlum og varla handa einum manni er þær koma úr ofninum. Carinan er kjötfugl, hvort sem henni er lógað 70—77 daga eða 147 daga gamalli og er kjötið af henni er ljóst. Carinan er hljóðlát, blístrar líkt og rauðhöfða bliki í tilhugalífinu. Hún er heimakær og passar plássið sitt vel. Hún getur flogið og í því húsi sem hún er sjást aldrei skorkvikindi né flugur. Gallinn við hana er, hve vont er að reka hana af staðnum sínum, því hún er þrjósk og stöð. Eins er ekki hægt að hafa hana úti í miklu frosti, en hún þolir vel allt að —5°C. Það væri vel við hæfi að nýja fugiadeildin á Hvanneyri kæmi henni til okkar bænda er hafa gæsir og endur sem hliðarbú- grein. Örn K. Porleifsson. Öræfingar voru ekki einangraðir. Frh. af bls. 567. öruggasta á landinu. Við Jökulsá á Breiðamerkursandi eru ristarhlið sitt hvoru megin við brúna og eins við Gígjukvísl á Skeiðarársandi. Sauðfé hér í sveit er því enn sent áður vel einangrað gagnvart utan- aðkomandi sjúkdómum. Sjálfra okkar vegna og annarra viljum við halda þessu hólfi öruggu. Við telj- um að meiri hætta sé á því að sauðfjársjúkdómar geti borist hing- að, ef fé héðan yrði flutt til slátrun- ar að Höfn eða Kirkjubæjarklaustri og tekin upp nánari samskipti við sláturhús þar. í öðru lagi er það svo atvinnuþátturinn. Þó að sláturvinn- an geti verið erfið þá hafa Öræfing- ar af henni nokkrar tekjur, sem þeir mundu missa ef sláturhúsið yrði lagt niður, jafnframt kæmi aukinn kostnaður vegna sláturfjár- flutninga. Dagsslátrun er yfirleitt um 400 fjár. Miðast það við nýtingu húsrýmis og hæfilegan bílfarm. Kjötið er flutt ófrosið hangandi í bíl til Hafnar í Hornafirði nú tvö sl. haust eins og áður segir. Slátrað var hér hátt á sjötta þúsund fjár samtals sl. haust. Að lokum vil ég segja það, að þær stórfelldu breytingar og fram- farir, sem orðið hafa í þessari sveit á síðustu áratugum, eru meiri en trúað hefði verið þegar ég var ungl- ingur. Ég vona að í framhaldi af því megi blómgast hér byggð og bú, sem eigi farsæla framtíð fyrir sér. M. E. Freyr 573

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.