Freyr - 01.04.1987, Side 13
Skinn af unglömbum
Frá Skinnaiðnaði Sambandsins á Akureyri. Sútaðar gœrur strengdar á grind til
þurrkunar. (Ljósm. M. E.).
Á hverju vori deyr allt að 5%
unglamba af ýmsum orsökum. Að
jafnaði eru hræin dysjuð og eru
almennt álitin verðlaus.
Víða erlendis eru skinn þessi
hirt og reynt að súta þau annað
hvort sem mokkaskinn, eða þá í
pelsskinn. Hér á landi hefur und-
anfarin ár ekki verið hirt um að
reyna þetta.
Sé grannt skoðað virðist ekkert
því til fyrirstöðu að gera tilraun til
þess að fá bændur til að hirða
þessi skinn. Skinnaiðnaður Sam-
bandsins er reiðubúinn til þess að
gera tilraun í þessa átt með bænd-
um. Flestir bændur þekkja vel
hvernig framkvæma á fyrirristu og
fláningu. Síðan er nauðsynlegt að
breiða skinnið vel og salta, til að
hindra rot og ofþornun.
Við erum reiðubúnir til að
greiða 100 kr. fyrir heilt skinn
afhent í kaupfélag. Við munum
síðan hafa samband við kaupfé-
lögin um flutning skinnanna til
okkar.
Almenningur styður ...
Frh. af síðustu síðu.
í hverri sýslu á landinu er mats-
nefnd sem í eiga sæti héraðsráðu-
nautur og umdæmisverkfræðingur
Vegagerðar ríkisins. Á vegum
þessara matsnefnda er árlega unn-
ið við fyrirhleðslu í 30-40 ám á
landinu en á þessu ári er ætlað að
verja 12,5 milljónum króna til
þessa verkefnis.
Afstaða almennings til land-
græðslumála hefur verið mjög já-
kvæð á undanförnum árum og
hvatning hefur komið um aukið
starf. Skortur á fjármagni hefur
þó alla tíð sniðið starfseminni of
þröngan stakk.
Sá árangur, sem náðst hefur í
landgræðslustarfinu á síðustu
árum, hlýtur að hvetja menn til
nýrra dáða og stærri átaka í land-
græðslu- og gróðurverndarmálum
á næstu árum.
Það er von okkar, að bændur
sýni máli þessu áhuga og bregðist
vel við. Sé þörf frekari upplýsinga
eru bændur beðnir að snúa sér til
Guðmundar Loga Lárussonar hjá
Skinnaiðnaði, Akureyri, sími 96-
Frá því árið 1979 hefur fyrirtækið
G. Olafsson hf. staðið fyrir blóð-
söfnun úr fylfullum hryssum, í
samvinnu við Félag hrossabænda.
Síðastliðið sumar voru prófaðar
913 hryssur en blóð tekið úr 757
hryssum, alls 18.927 ltr. Verð fyrir
fulla blóðtöku úr hryssu var kr.
2.730 og er það 30% hækkun frá
fyrra ári. Greiðslur til bænda voru
hátt í 2,5 millj. kr. en af því greiðir
G. Ólafsson hf. 1% til Félags
hrossabænda. Aukning blóðtök-
unnar í ár var um 10% og er gert
ráð fyrir að aukningin verði ekki
minni á næsta ári, fremur meiri.
Fullvinnsla blóðsins og sala horm-
ónsins PMSG er hafin og lofar
góðu.
Vegna markaðsöflunnar varð
að koma á fót nýju fyrirtæki fyrir
framleiðsluna. Reyndist það kosta
21900, og mun hann veita frekari
upplýsingar.
Örn Gústafsson
Forstöðumaður Skinnaiðnaðar
Sambandsins
Akureyri.
50 millj. kr. og er þungur baggi
þar sem lánsmöguleikar voru
mjög takmarkaðir. Og ekki bætti
úr skák, að Rannsóknarráð ríkis-
ins, sem eðlilegt sýnist að styðji
svona starfsemi, veitti í fyrstunni
engan styrk til þessa verkefnis.
Gangskör var að því gerð að fá á
þessu Ieiðréttingu með þeim ár-
angri, að við síðustu úthlutun til
rannsóknaverkefna fengust 4,0
millj. kr.
Þá gekkst stjórn Félags hrossa-
bænda fyrir því, að Stéttarsam-
band bænda veitti fyrirtækinu 1,0
millj. kr. lán, sem stjórnarmenn
gengu í ábyrgð fyrir. Rangæinga-
deild Félags hrossabænda gekkst
einnig fyrir útvegun láns, með
ábyrgð stjórnarmanna.
Freyr 261
Hátt í 2,5 millj. kr. fyrir hryssublóð