Freyr - 01.04.1987, Blaðsíða 19
annarra starfsmanna en kennara-
liðs í því að skapa ramma um
skólastarfið. Þessir starfsmenn
komast oft í mun nánari tengsl við
nemendur en kennararnir, t. d.
ráðsmenn og vélamenn. Eftir því
sem umræður um þetta stóðu
lengur varð mönnum æ tíðræddara
um heimavistina sjálfa og mötu-
neytið og þá þýðingu sem starfs-
menn þar hafa fyrir andrúmsloftið
í skólanum, einkum þá húsmóð-
urin.
Það virðist almenn regla í
heimavistarskólum á Norður-
löndum að þar starfi húsmóðir
sem sér algjörlega um heimavist
og mötuneyti, ráðningar, innkaup
og daglegt eftirlit. Af máli sumra
mátti jafnvel skilja að þetta væri
sú manneskja sem skipti sköpum
um það hvort skólinn teldist góður
eða slæmur.
A öllum heimilum gilda ein-
hverjar reglur, einnig í heimavist-
um. Og alltaf eru einhverjir sem
ekki hlíta þessum reglum. Hvað er
þá til ráða?
Fulltrúar hvers lands lýstu við-
horfum í þessu efni í dæmigerðum
skóla hjá sér. Reglurnar voru víð-
ast hvar líkar og eins mátti greina
nokkra viðkvæmni manna fyrir að
bera vandræði sín á torg, líklega
mest af ótta um að ástandið sé
betra alls staðar annars staðar.
Allir voru sammála um að ekki
megi láta einn gikk spilla öllu
skólastarfi og við og við verður að
grípa til þess að vísa nemenda út af
heimilinu. Tilefni þess getur verið
margvíslegt og erfitt getur verið að
setja skýr mörk. En um það voru
allir (nema Danirnir) sammála að
áfengisnotkun fylgja ávallt, fyrr
eða síðar, þær afleiðingar að vand-
ræði hljótist af. Því er alls staðar
(nema í Danmörku) reynt að
koma í veg fyrir notkun áfengis og
annarra slíkra efna með því að
bregðast hart við.
í Danmörku eru viðhorf öll
önnur. Á einum skóla höfðu þeir
þó ama af sókn nemenda á krá í
nágrenninu, en það var leyst með
Hluti af garðyrkju- og ylrœktarsvæði Munkagárdsskólans.
Eins og húsin var allur vélakostur nýr. Pessar dráttarvélar eru aðeins hluti af þeim
vélum sem skólinn á.
Fóðursíló tengd tölvustýrðum blöndunarbúnaði inni í hlöðunni. Til vinstri á myndinni
er geysistór mykjuþró enda þarfhún að taka við mykju frá 60 mjólkurkúm og nokkur
hundruð svínum.
Freyr 26Z