Freyr - 01.05.1987, Qupperneq 12
Páll ísólfsson dómorganisti.
lagslegu átaki. Þeir gera eitt mesta
mannvirki sem þá hafði verið gert
á íslandi: sjóvarnargarðurinn frá
Ölfusárósum og austur í Gaul-
verjabæjarhrepp. Þeir voru svo
heppnir að gangast fyrir stofnun
Mjólkurbús Flóamanna sem nú
spannar yfir þrjár sýslur. Ég tel
það heppni og ég held að menn
sjái það í öðrum byggðum landsins
að nú er nauðsynlegt að breyta
skipulaginu, t. d. á Norðurlandi, í
svipað horf og hér. Ég vil því segja
að Flóamenn séu þarna í forystu-
hlutverki.
Menningarstarfsemi í Flóanum?
Menningarstarfsemi hér í Flóan-
um er ósköp svipuð og á öðrum
svæðum hérna sunnanlands. Það
voru stofnuð hér búnaðarfélög í
kringum 1880. Á þessu svæði voru
stofnuð ungmennafélög strax árið
1908. Ég nefni einnig Eyrarbakka,
sem er partur af Flóanum, og mið-
stöð menningarlífs og félagslífs hér
um áratugi. Ég hygg að leiklistar-
starfsemi, sönglist og alls konar
félagsmálastarfsemi hafi verið
fyrri til að komast þar á fót heldur
en annars staðar. Auðvitað er það
fyrir forgöngu menntaðs fólks eins
og Guðmundar Thorgrímsen sem
var lengi faktor á Eyrarbakka og
Nielsen tengdasonar hans, sem
einnig var þar lengi faktor.
Síðan koma hér upp ættir í Fló-
anum sem breiða út mikla menn-
ingu, eins og Selsættin í Stokks-
eyrarhreppi. Páll ísólfsson var af
þeirri ætt. Þetta fólk gerist for-
göngumenn í sönglist. Jón Pálsson
frá Seli gengst fyrir kennslu í ver-
stöðvunum hér austanfjalls svo að
vermenn geti notað frístundir
sínar til þess að auðga anda sinn
með ýmsum hætti.
Ég tel á engan hallað þó að sagt
sé að Flóamenn séu alveg í
fremstu röð um nýjungar þær sem
urðu á landinu á 19. öldinni og
þeirri 20.
—1ð á KAFFlH—
Fullnýttur kvóti
Enn um mat á kmdakjöti.
Frh. afbls. 345.
hafa náð hálfri sinni eðlilegu full-
orðinsþyngd (hálfri þyngd sam-
kynja foreldris). 10% frávik er
talið leiða almennt til lakari flokk-
unar, annað hvort vegna megurð-
ar eða offitu.
Undan þeim litlu og saman-
þjöppuðu ætti því að vera nauð-
synlegt að slátra alllöngu áður en
þau hafa náð meðalþyngd sam-
svarandi viðmiðunarhópa á búinu.
Hinn ágæti fjárræktarmaður,
Einar á Skörðugili, veit fullvel að
með því að „fletta“ fjárbók má
finna ýmsar staðreyndir og kynn-
ast hjörðinni og einstaklingunum,
en það er oft fljótlegra að draga
rangar ályktanir heldur en þær
sem taka tillit til allra áhrifaþátta
og mynda raunhæfar niðurstöður
sem allir gætu lært af og treyst.
Hálfdán Björnsson bóndi á Hjarð-
arbóli í Aðaldal í Suður-Þingeyjar-
sýslu fékk leigt orlofshús Stéttar-
sambands bænda á Hólum í
Hjaltadal í eina viku á sl. sumri,
ásamt konu sinni, Bergljótu Bene-
diktsdóttur. í lok dvalarinnar
skrifaði hann eftirfarandi ljóð í
gestabók hússins:
Við fórum hingað er heyskap var lokið
að hafa hér sæluvikudvöl,
laus við allt búskaparamstrið og okið
sem oft verður þreyttum hin mesta kvöl.
Vistlegt var húsið með dökka dúka,
drifhvítir veggir og hvergi skúm
og þarfatól sérhvert sem þörf var að brúka
og þægindi öll nema hjónarúm
Þeir Hallarmenn syðra sem hingað oss vista
og hafa þann alræmda kóta sett
víst telja að hjón þau sem hér fá að gista
hafi nú klárað sinn fullvirðisrétt.
340 FREYR