Freyr - 15.12.1987, Blaðsíða 10
Frá Hvanneyri. (Ljósm. Ingimar Einarsson).
Hvanneyrarskóli er stórmerk
menntastofnun
Folke Rasmussen fyrrverandi rektor Búnaðar- og
dýralæknaháskólans í Kaupmannahöfn í ræðu á 40 ára afmæli
Búvísindadeildarinnar á Hvanneyri.
A samkomu í tilefni af40 ára afmœli Framhaldsdeildar Bændaskólans á Hvanneyri hinn
19. október sl. flutti Folke Rasmussen fyrrverandi rektor Landbúnaðar- og dýralœkna-
háskólans í Kaupmannahöfn
Ræðumaður hóf mál sitt með því
að flytja Búvísindadeild Bænda-
skólans á Hvanneyri góðar kveðj-
ur og heillaóskir frá Konunglega
dýralækna- og búnaðarháskólann í
Kaupmannahöfn og frá sjálfum
sér og þá einnig til frumkvöðuls
Framhaldsdeildarinnar Guð-
mundar Jónssonar, fyrrum skóla-
stjóra sem og Sveins Hallgríms-
sonar núverandi skólastjóra Bú-
vísindadeildar.
Hvanneyri og Kvan
Ræðumaður ræddi um hin góðu
tengsl sem myndast hefðu með
erindi. Utdráttur úr því fylg
hinum tveimur stofnunum,
Hvanneyrarskóla og Dýralækna-
og búnaðarháskólanum í Höfn.
Sjálfur sagðist hann vera tengdur
Hvanneyri traustum böndum af
góðum kynnum við starfsmenn
Búvísindadeildarinnar. En auk
þess hagaði svo til að af tilviljun
hefði hann alla sína æfi líka verið
tengdur sjálfu nafninu Hvanneyri
því hann hefði fæðst og alist upp
nálægt litlu þorpi að nafni Kvan-
löse sem liggur á Sjálandi miðju.
Nú ætti hann heima þar í
Kaupmannahöfn sem heitir Van-
löse. Nöfn þessi eru eins og
hér á eftir.
Hvanneyri komin frá sveipjurt
þeirri er heitir Kvan á dönsku,
(Angelica archangelica), og sem
hefur vaxið á fyrrnefndum þremur
stöðum. Ræðumaður vitnaði til
íslenskra fornsagna þar sem getið
væri hvannagarða sem hefðu verið
matjurtagarðar fyrri tíma.
Fræðarinn
Folke Rasmussen ræddi þessu
næst um hvaða eiginleikum góður
kennari við framhaldsmennta-
stofnun ætti að vera búinn.
Hann á, sagði ræðumaður —
auk góðra, mannlegra eiginleika
978 Freyr