Freyr - 15.12.1987, Side 21
Vanhöld á ám voru óvenju mikil.
Alls fæddust á búinu 1039 lömb og
af þeim fórst 101 lamb til hausts
eða 9,7%, sem er of mikið að
venju. Undan ám misfórust 76
lömb en 25 voru undan gemling-
um. Dauðfædd lömb voru 22, en
11 dóu í fæðingu, 48 lömb dóu
fyrir rúning, 16 á fyrsta sólarhring,
flest fædd veikburða eða urðu
fyrir hnjaski, 2 lömb fengu „vatns-
kjaft“ og dóu, 2 lömb dóu úr
selenskorti, 4 lömb dóu úr mjólk-
ureitrun, 1 lamb úr skitu, 1 úr
hungri, 2 af slysum, 5 lömb dóu í
skurðum og 15 af óljósum or-
sökum. Frá rúningi til haust fund-
ust 4 lömb dauð og 16 vantaði á
heimtur.
Gemlingar.
Allar gimbrarnar á búinu voru í
tilraun með samanburð á
haustrúningi og vetrarrúningi.
Peirri tilraun lauk haustið 1987 og
hefur hún nú verið gerð endanlega
upp. Niðurstöður hennar verða
fljótlega birtar í Frey og því ekki
gerð nánari grein fyrir afurðum
gemlinganna hér.
Selt og keypt fé.
Búið seldi einn lambhrút en
keypti einn hrút veturgamlan og
einn lambhrút.
Sauðfé sett á vetur.
Haustið 1986 var sett á vetur 751
kind, 533 ær, 16 hrútar fullorðnir,
1 snuðrari 15 lambhrútar og 186
gimbrarlömb. Tvær ær fórust fyrir
áramót.
Vanhöld.
Af 759 kindum, sem lifandi voru
um áramót 1985—’86, fórust alls
47 kindur eða 6,2%, auk þess sem
þremur ám var lógað vegna varna.
Alls misfórust 38 ær og 9 gimbrar.
Orsakir vanhaldanna voru: Af-
velta 9, ofaní 1, eitlabólga 1, fóst-
ureitrun 1, burðarerfiðleikar 2,
júgurdrep 3, legeitrun 9, doði 1,
garnapest 2, vantar á heimtur 9,
en aðrar orsakir eru ekki ljósar.
Vanhöld á ám voru óvenju mikil.
Alls fæddust á búinu 1039 lömb og
af þeim fórst 101 lamb til hausts
eða 9,7%, sem er of mikið að
venju. Undan ám misfórust 76
lömb en 25 voru undan gemling-
um. Dauðfædd lömb voru 22, en
11 dóu í fæðingu, 48 lömb dóu
fyrir rúning, 16 á fyrsta sólarhring,
flest fædd veikburða eða urðu
fyrir hnjaski, 2 lömb fengu „vatns-
kjaft“ og dóu, 2 lömb dóu úr
selenskorti, 4 lömb dóu úr mjólk-
ureitrun, 1 lamb úr skitu, 1 úr
hungri, 2 af slysum, 5 lömb dóu í
skurðum og 15 af óljósum or-
sökum. Frá rúningi til haust fund-
ust 4 lömb dauð og 16 vantaði á
heimtur.
Leiðrétting
í 19. tbl., bls. 763, hefur slæðst
inn rangt ártal í tillögu fram-
leiðslunefndar II. í lok 2. liðar
stendur: „Óski búnaðarsambönd-
in eftir að nota þennan rétt skal
það tilkynnt Framlleiðsluráði fyrir
20. sept. 1988.“ Þar á að standa
... fyrir 20. sept. 1987.
Blaðið biðst velvirðingar á þess-
um mistökum.
Á allar dráttarvélar frá 15. apríl 1988:
• •
Oryggishús, öryggisgrind eða veltibogi
í „Reglugerð um dráttarvélar og hlífabúnað við aflflutning frá þeim“ nr. 153/
1986 var gefinn aðlögunartími til 1. janúar 1988 til að gera þessa mikilvægu
öryggisráðstöfun. Hann hefur verið framlengdur til 15. apríl.
Ákvæðið um öryggishús, öryggis-
grind eða veltiboga er sett vegna
þess að nær öll dauðaslys, sem
orðið hafa við veltu dráttarvéla,
urðu þegar vélar án þessa örygg-
isbúnaðar ultu.
Bíðum ekki slysanna.
Komum í veg fyrir þau!