Freyr

Årgang

Freyr - 15.04.1990, Side 8

Freyr - 15.04.1990, Side 8
Minna fé veitt til rann- sókna vegna atvinnuvega Fjárveitingar til rannsókna í þágu atvinnuveganna hafa dregist saman um 480 milljónir króna, eða 22%, á um þremur til fjórum árum, þ.e. frá árinu 1987 til fjárlagaársins 1990. Er þá miðað við verð- lag í ársbyrjun 1990. Rannsóknaráð ríkisins hefur athugað fjárveit- ingar til rannsókna í þágu atvinnuveganna á síð- ustu árum og hvað ætlað er til þeirra á fjárlögum þessa árs. Af fyrrnefndri upphæð eru 290 milljónir króna eða 19,3% á fjárveitingu raktar til samdrátt- ar í fjárveitingum og mörkuðum tekjustofnun sam- kvæmt fjárlögum. Afgangurinn er talinn vera vegna samdráttar í raunvirði sértekna hjá hlutað- eigandi stofnunum. Hefur Rannsóknarráð látið í ljós miklar áhyggjur af því hversu horfir um mál- efni rannsókna og þróunar í landinu. Óvenjulegt elliheimili í Noregi í Sogni og Fjörðum í Noregi er verið að fara nýjar leiðir í málum aldraðra. í tengslunr við fyrirhugað dvalarheimili fyrir roskið fólk, sem reisa á í Vevr- ingsveit á að vera bæði fjós og hlaða. Þar verða bæði kýr og kálfar auk annars þess sem kúabúi tilheyrir. Flestir þeirra sem verða á þessu heimili aldraðra koma frá bæjum í nærliggjandi sveitum. í frétt frá Norinform um þetta er haft eftir Rune Aarseth, forstöðumanni Fjordtun-stofnunarinnar sem stendur að framkvæmd þessari, að talið hafi verið eðlilegt að þeir sem þar dveljist og það vilji, fái tækifæri til að hirða skepnur eftir að þeir hafa orðið að flytja að heiman. Reynt verður að hanna Fjarðatúns (Fjordtun-) stöðina þannig að mannvirki falli vel inn í umhverf- ið. Þarverðursundlaug, heimahjúkrun, samkomu- salur og bókasafn. Auk búfjárhalds eiga dvalar- gestir kost á að dunda sér við blóma- og grænmetis- rækt og þar nýtist búfjáráburðurinn. Aarseth forstöðumaður lætur þess getið að þetta eigi að vera staður þar sem bæði ungir og gamlir uni sér. Auk þess að annast um gamla fólkið í þessum sveitum viljum veit þeim fyllra líf, segir hann. 304 Freyr Framleiðsla í fiskeldi jókst um 48% að verðmæti Framleiðsla í fiskeldi nam 2.351 milljónum kr. að verðmæti á sl. ári að því er Veiðimálastofnun áætlar og hefur það aukist um 48% frá 1988. Matfiskeldi úr laxi er verðmætast, en þar voru framleidd um fjögur þúsund tonn fyrir 1,2 milljarða króna. Af silungi var slátrað tæpum 200 tonnum að verðmæti 54 millj. kr. Flutt voru út um 1238 tonn af laxi og silungi fyrir um 380 milljónir kr. Veiðimálastofnun áætlar að 10-11 milljón gönguseiði verði framleidd í ár en í fyrra voru framleidd 7,6 milljón gönguseiði og 6,4 milljón stórseiði. Námskeið og sumarleyfi Samtökin Norræn fullorðnisfræðsla efna til nám- skeiðs í dönsku og danskri menningu á Borrevejle ráðstefnumiðstöðinni f grennd við Hróarskeldu dagana 19.-25. ágúst nk. Sérstök áhersla verður lögð á að skilja danskt talmál. Þátttökugjald er 1700 kr. sænskar og innifalið í því gisting og fæði ásamt kennslu og ferðalögum meðan á námskeiðinu stendur. Agnar Guðnason mun verða þátttakendum til aðstoðar um að út- vega þeim ódýra flugferð til og frá Danmörku. Námskeiðið er ákjósanlegt sambland af sumarleyfi og námi. Umsóknir skulu sendar Hákoni Sigurgrímssyni, Stéttarsambandi bænda, sími 91-29433 fyrir 1. júní nk. og veitir hann nánari upplýsingar. Svíarvilja borga mcira fyrir sænskan mat Yfir 70 prósent af Svíum segast vilja borga meira fyrir sænskan mat en innfluttan til þess að tryggja bændum landsins atvinnu. Þetta kom fram í skoð- anakönnun nýlega á afstöðu almennings til land- búnaðarins. 95 prósent af þeirn 1000 sem spurðir voru telja að miklu skipti að samfélagið styðji þá sem vilja eiga heima og vinna á landsbyggðinni. 8. APRÍL 1990

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.