Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.04.1990, Qupperneq 14

Freyr - 15.04.1990, Qupperneq 14
mikla ábyrgð í umhverfismálum og þeir þurfa að auka þekkingu sína á þessu sviði. Þar vantar mikið á eins og ástand þessara mála núna er sönnun fyrir. Varðandi endurskipulangingu véla og verkfæra er ég með þá hugmynd að komið verði upp af- girtum reit í hverri sýslu þar sem væri skildar eftir vélar sem menn vildu losna við. Þar gætu aðrir gengið í þær og leitað sér að vara- hlutum. Svo væri annað hólf þar sem væru vélar sem menn vildu selja. Þetta væri allt skráð í tölvu og skráin næði yfir allt landið og menn ættu aðgang að henni. Það sem nýttist ekki yrði svo endurunnið sem brotamálmur eða gengið tryggilega frá því. Við verðum að átta okkur á því að tengsl bóndans og þéttbýlis- búans hafa minnkað stórlega á síð- ari árum. Það eru fjölmiðlar sem hafa þau tengsl mest með höndum og sú mynd sem þeir gefa er oft skekkt. Núna er farin að vaxa upp kyn- slóð í landinu sem á ekki bein samskipti við sveitafólk eins og áður, þ.e. sendir ekki börn til ætt- ingja í sveitinni til sumardvalar eins og áður var gert. Þó er þarna sá ljósi punktur að með aukinni bændagistingu og ferðaþjónustu í sveitum eru þessi tengsl að aukast á ný. Aðalatrið- ið í þessu sambandi er þó það að ímynd sveitanna í augum þéttbýlis- búa mótast töluvert af því sem fer miður. Þarna hefur stefnuleysi í umhverfismálum komið bænda- stéttinni í kolla. Hvað gerir þú í tómstundum? Ég reyni að eiga mér tómstundir og á mér ýmis tónstundaáhugamái. Ég hef gaman af að lesa, t.d. ljóð og laust mál eftir nútímahöfunda. Nú, ég stunda dálítið ljósmyndun og hef gaman af því. Yfir veturinn æfi ég svo körfubolta einu sinni í viku í Reykjaskóla og að lokum má nefna að ég stunda teiknun og málun mér til skemmtunar. Ég fór á námskeið í þeim greinutn fyrir tveimur árum á vegum fullorðins- fræðslu hér á Norðurlandi vestra. Það kveikti í mér. Hefurþú sýnt myndir? Já, reyndar, einu sinni, á Húna- vöku á Blönduósi árið 1989. Og væntanlega verð ég með sýningu á Akureyri nú í vetur. Stundið þið Sigurbjörg sömu tómstundaráhugamál? Að sumu leyti, nema hvað Sigur- björg er meira í tónlistinni, en hún er að læra á píanó. Síðan er eitt áhugamál, sem er búgrein líka, en það er hrossarækt. Við temjum bæði og stundum út- reiðar og höfum farið í ferðalög á hestum. M.E. Bændaskólinn á Hvanneyri Auglýsing um innritun ncmenda í Bændadcild á haustönn 1990 Kennsla er nú hafin eftir nýrri námsskrá. Helstu breytingar frá fyrri námsskrá eru: 1. Aukin kennsla í bústjórn og rekstrartækni. Þær greinar verða nú sérstakt námssvið. 2. Umhverfisfræði og landnýting verða sérstakar náms- greinar. 3. Valmöguleikum í náminu erfjölgað. 4. Nemendur hafa nú möguleika á framhaldsnámi í bænda- deild, sem nemur einni önn. Búfræðinámið er tveggja ára nám (4 annir). Stúdentar geta lokið námi á einu ári. Beiðni um inngöngu í 1. bekk á haustönn 1990 ásamt prófskírteinum sendist skólanum fyrir 10. júní nk. Nánari upplýsingar eru veittar á Hvanneyri í síma 93-70000. Skólastjóri 310 Freyr 8. APRÍL 1990

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.