Freyr - 15.04.1990, Page 15
Islenski svínastofninn, kostirog
gallar
íslenskar gyltur eru frjósamar og endast vel og íslenskt svínakjöt er bragðgott, en ífeitara
lagi og grísir vaxa hér of hœgt.
Gylta með grísi. íslensk svín eru frjósöm en hægvaxta.
Megin ókostur íslenska svína-
stofnsins er að hann vex og hægt og
safnar of mikilli fitu. Hvorttveggja
er þó mjög breytilegt innan stofns-
ins og væntanlega hægt að hraða
vexti og minnka fitusöfnun með
úrvali innan hans, sagði dr. Stefán
Aðalsteinsson búfjárfræðingur í
viðtali við Frey.
Áberandi kostir á íslenska svína-
stofninum eu hve gyltur hafa
sterka fætur og hvað þær endast
vel. íslenskar gyltur gjóta fimm til
sex sinnum að meðaltali um ævina,
en til samanburðar gjóta norskar
gyltur að meðaltali sjaldnar en
þrisvar sinnum.
Veigamikil ástæða fyrir slakri
endingu hjá norskum gyltum er sú,
að fætur þeirra bila á unga aldri. í
Danmörku hefur verið sýnt fram á,
að þar í landi séu fótagallar til
mikils baga hjá svínum og að þeir
séu að verulegu leyti arfbundnir.
íslenskt svínakjöt er almennt
talið bragðgott, en bragðgæði þess
hafa að vísu ekki verið tekin til
rannsóknar sérstaklega. Sums-
staðar erlendis er kvartað verulega
undan bragðgæðum svínakjöts þar
sem mikið hefur verið reynt að
minnka fitu í því með úrvali. Bend-
ingar um slfka afturför í bragðgæð-
um er t.d. að finna í Bretlandi,
Noregi og Svíþjóð.
Ef menn vilja bæta íslenska
svínastofninn með innflutningi
þarf að gæta þess að tapa ekki
niður fótahreysti og endingu gyltn-
anna né gæðum kjötsins.
Með hvaða kynjum yrði íslenski
svínastofninn kynbættur?
Þar koma tvö sjónarmið til greina.
Annars vegar sjúkdómar sem tak-
marka val mjög mikið og varla þá
um önnur lönd að ræða en Noreg.
Hinsvegar er það sóknin í þá eigin-
leika sem okkur vantar. Norska
landkynið vex hratt og er fitulítið,
en í því kyni eru fótagallar og
kjötið stundum bragðlítið. Ef til
innflutnings á sæði kemur til að
bæta íslenska svínastofninn, skipt-
ir miklu að velja þær gyltur sem
tækju við innfluttu sæði úr norsk-
um göltum og fylgjast vel með af-
kvæmum úr fyrsta innflutningnum
til að kanna ágæti þeirra áður en
þeim yrði alfarið dreift um land
allt. Sagði dr. Stefán Aðalsteins-
son að lokum.
J.J.D.
Til sölu
Viljum selja Carboni hey-
hleðsluvagn ó einum öxli, 27
rúmmetra, árgerð 1977, og
Carboni vagn á tveimur öxl-
um, 34 rúmmetra, árgerð 1980.
Vagnarnir eru mikið notaðir
en í lagi. Þeir hafa verið
geymdir í húsi á veturna og
því lítið ryðgaðir. Verðhug-
mynd ca. 150-250 þúsund
krónur eða eftir samkomulagi.
Höfum einnig til sölu súgþurrk-
unarblásara, H-22, frá 1974.
Selst ódýrt.
Félagsbúið Holti, 801 Selfoss.
Sími 98-63319 Jón,
98-63320 Vernharður,
98-63321 Hörður.
8. APRÍL 1990
Freyr 311