Freyr - 15.04.1990, Side 16
Matthías Eggertsson
Ræktun grænfóðurnæpu
Fóðureiningin af grænfóðurnæpu úti á akri kostar um kr. 7,50.
Um miðjan mars sl. rœddi ég í búnaðarþœtti í útvarpinu um ræktun grœnfóðurnœpu. í
lok þess þáttar boðaði ég að birtyrði hér í blaðinu frœðsluefni um þessa ræktun. Fylgir
það hér á eftir.
Úr tilraun með grœnfóðurnœpu á Korpu. Stofninn er Civasto. (Ljósm. Árni
Bragason).
Ræktun grænfóðurnæpu í því
formi sem sú ræktun fer nú fram
hófst um 1975 með því að gerðar
voru tilraunir með nokkra stofna, í
upphafi einkum á Norðurlandi.
Aður, um og eftir miðja öldina,
höfðu verið gerðar tilraunir með
ýmsa stofna af fóðurnæpum og
fóðurrófum hér á landi, sem Sturla
Friðriksson erfðafræðingur stóð
einkum fyrir. Þær tilraunir leiddu í
ljós að sumur hér á landi voru að
jafnaði nægilega hlý til ræktunar
fóðurnæpu en uppskera var tölu-
vert minni af fóðurrófum og sú
ræktun þar með óhagkvæmari.
Úr tilraununum á 8. áratugnum
fékkst sú niðurstaða að hollenskur
stofn af fóðurnæpu að nafni Ci-
vasto hentaði best hér á landi. Ci-
vasto næpur eru aflangar í laginu,
líkt og belgmiklar flöskur, og vaxa
að mestu leyti ofanjarðar, þannig
að þær eru aðgengilegar hvort sem
er til beitar eða upptöku. Auk þess
vex á þeim mikið kál sem er gott til
beitar.
Kosturinn við að rækta þær fram
yfir aðrar grænfóðurtegundir af
krossblómaætt, svo sem fóðurkál,
er að þær gefa hvað mesta upp-
skeru allra fóðurjurta hér á landi,
mælda í hestburðum og mesta ef
mælt er í fóðureiningum. Eðlileg
uppskera af káli og næpum saman
er sem svarar um 70-100 hestburð-
um af ha, en í tilraun á Skriðu-
klaustri fengust eitt sumar 135
hestburðir af hektara. Við mæl-
ingu á fóðurgildi reyndust aðeins
vera 1,1 kg af þurrefni með 15%
rakamagni í hverri fóðureiningu
þannig að nær hreinu kjarnfóðri
verður vart komist að fóðurgildi.
Annar kostur er sá að næpurnar
nýtast betur til beitar en fóðurkál
ef tíð er rysjótt á haustin. Þó að það
snjói á þær þá standa þær vel og eru
aðgengilegar til beitar ef og þegar
snjóinn tekur aftur og þær þola að
frjósa og þiðna á víxl. Þá virðist
geldpeningur og sauðfé nýta vel
næpurnar frosnar í jörðu.
Ræktunarferillinn
Hér verða nú nefnd nokkur atriði
við ræktun grænfóðurnæpu eins og
þau gerast í tímaröð.
Fyrst erþað jarðvegurinn. Hann
ná hvorki vera of þurr né of blaut-
ur. Þannig hentar vel framræstur
mýrarjarðvegur til þessarar rækt-
unar. Þá má jarðvegur heldur ekki
vera of súr. Eini staðurinn þar sem
ég veit til að ræktun grænfóður-
næpu hafi ekki tekist vel er á
Hvanneyri og er talið að því hafi
valdið að jarðvegur hafi verið of
súr.
Fyrst eftir að ræktun grænfóður-
næpu hófst var eindregið ráðlagt
að sá henni með mönduldreifara
eða ristardreifara ásamt með
áburðardreifingunni. Hins vegar
hefur komið í ljós að góður árang-
ur hefur náðst með sáningu með
312 Freyr
8. APRÍL 1990