Freyr - 15.04.1990, Page 21
Kolla á hreiðri í töpp við Fremravatnsbakka.
Dag nokkur komu skyndilega
heim á hlað þrjár æðarkollur, allur
aliungaskarinn og ungakolla með
átta unga. Hún hafði tekið þrjár í
fóstur, í samfloti með henni var ein
geldkolla.
Ég var hissa á þessunr tilþrifum,
en að augnabliki liðnu renndi fálki
sér yfir svæðið í hlaðvarpanum og
lét ófriðlega með allar klær úti. Ég
lét strax í mér heyra og tókst að
flæma hann á braut og elti nokkuð
frá bæ. Þegar ég kom til baka voru
aliungarnir og kollurnar þrjár
komnar niður að vatni aftur. Upp
við húsvegginn kúrðu sig kollurnar
tvær með ungana 8 og kurruðu til
mín. Yfirleitt var kollum mínum
ekkert í mun, að ég væri að gefa
mig að ungum þeirra. Ég hefði
ekki veitt þeim og ungunum eftir-
tekt ef kollan hefði ekki látið í sér
heyra. Ég lít svo á að hún hafi
þarna verið að þakka mér hjálp-
semina.
Ungauppeldi
Þann 20. júní voru 18 æðarungar
og einn gæsarungi teknir heim úr
hreiðri í varpi í Eyjum. Þrír gæsar-
ungar voru teknir heim viku áður
og tveir yfirgefnir æðarungar í Eyj-
um 24. júní. Ungarnir voru viðrað-
ir úti á daginn, en hafðir inni í húsi
um nætur fyrstu fjóra sólarhring-
ana, en voru þá fluttir út í stíu og
höfðu þar ljósaperu hjá sér sem
fóstru og hitagjafa.
Fyrsta daginn var ungunum boð-
in brauðmylsna, en úr því frjálst
val á andarungafóðri frá Samband-
inu og laxaseiðafóðri frá ístess hf.,
sem var útrunnið á tíma í seiðaeldi.
Ungarnir voru gráðugir í seiða-
fóðrið, en sniðgengu andarunga-
fóðrið. Ef til vill hefur þeim fundist
það of gróft, þrátt fyrir að ég muldi
það þónokkuð.
Strax á öðrum degi bar á ódöng-
un hjá ungunum, lakastir 22. og
23. júní. Þeir voru daufir, hafa
trúlega verið með magakveisu og
sumir þeirra duttu á hrygg við
snyrtingu. Ég takmarkaði þágjöf á
seiðafóðri og fór að gefa með til
öryggis fóðurger og vítamín-
blöndu. Ungarnir réttu þá við og
voru farnir að dafna vel að tveimur
dögum liðnum.
Lengi framan af voru þeir
gráðugri í seiðafóðrið en andar-
ungafóðrið og þurfti því um skeið
að stjórna gjöf á laxaseiðafóðri.
Þrír æðarungar misfórust fyrstu
fjóra dagana. Einn var vanmeta frá
upphafi, annar hefur að líkum
kafnað undir í ungahrúgu í
þrengslum í horni, sá þriðji vænt-
anlega farið úr magakveisu, sem
óbeint hefði líka getað orsakað
dauða beggja hinna. Gæsarung-
arnir voru heimaríkir við æðarung-
ana. Sem var eðlilegt þar sem þeir
höðu verið í dálæti áður en æðar-
ungarnir komu á staðinn. Gæsar-
ungarnir gátu því aldrei fellt sig við
að vera í öðru sæti og gæta æðar-
unga, öðru nær, þeir sáu sig aldrei
úr færi um að sýna æðarungunum
yfirgang. Þetta olli miklum vand-
ræðum við uppeldi tegundanna,
öðru vísi en áður var, þegar gæsar-
ungar voru mér til halds og trausts
við uppeldi æðarunga. Meira að
segja daginn sem ég flutti æðarung-
ana út í Oddsstaðalón, sneru
gæsarungarnir við heim aftur í
Vatnsenda á undan mér við
Kríutanga í trausti þess að vera nú
lausir við æðarungana. Þau urðu
endalok gæsarunga minna á þessu
hausti að þeir fóru í göngutúr með
mér til næsta bæjar, 7 km leið og
urðu svo hrifnir af umfeðmi svæð-
isins að þeir sóttu þangað strax
aftur að sjálfsdáðum. Það þurfti
því að aflífa þá, svo að þeir yllu
ekki öðrum vandkvæðum.
Eldri uppeldisárgangar æðar-
fugls og geldkollur sóttu að vanda
eftir félagsskap við æðarungana.
Þrjár til fimm kollur voru þar
áhugasamastar, en aðeins ein sem
hafði þar ábyrgðartilfinningu,
gamla fóstra nr. 239563. Hinar
voru meira úti eftir því að komast í
matargjöf unganna. Að jafnaði
voru um tuttugu geldkollur í slag-
togi með ungunum, tældu þá með
sér niður að vatni og Iágu hjá þeim
á vatnsbakka, en voru að öðru leyti
til óþurftar við umönnun unganna.
Ungarnir voru orðnir sæmilega
vatnsþolnir þann 30. júní, stálust
þá með kollum niður á vatn og
voru þar í pössun í 3 klst. Stél-
myndun var hafin á þroskamestu
ungunum þann 6. júlí og greinileg
mótun vængfjaðra 10. júlí. Þann
dag voru ungar merktir á hægri fót
í númeraröð frá 239-587 tií 603.
Þann morgun og fram eftir degi
voru 30-40 geldkollur heima við á
Vatnsenda.
Hætt var að hýsa unga í stíu um
nætur þann 14. júlí. Fóðurþörf
8. APRÍL 1990
Freyr 317