Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1990, Síða 27

Freyr - 15.04.1990, Síða 27
fyrst og fremst hugsað um eigin hag en kært sig kollótta um hvernig öðrum reiddi af. Þetta er nú einmitt hugsjónin í dag, frelsið og óheft samkeppni, sem fólki hefur verið talið í trú um að mundi bæta afkomu framleiðanda og neyt- enda. Þetta vita flestir að er stór- kostleg blekking sem skaðar fram- leiðendur og bætir ekki afkomu neytenda á nokkurn hátt. Það eru margir, sem halda að dreifingafyr- irtækin hafi malað gull á sölu garð- ávaxta, þar sem álagning hefur sennilega fimmfaldast miðað við það, sem tíðkaðist hjá gamla Grænmetinu. Það er nú öðru nær, flest þessara fyrirtækja eru illa stödd. Jóhann Jónasson fyrrum forstjóri Grænmetisins safnaði í sjóði og byggði glæsilegt hús, þrátt fyrir að álagning væri lítil. Þeir sem tóku við söfnuðu skuldum og hafa aldrei náð sér á strik, það hefur verið eitt alls herjar basl öll þessi ár. Húsakynnin standa auð og yfir- gefin og þar fara ekki kartöflur í geymslur sem sérstaklega voru byggðar til þess að þjóna framleið- endum og neytendum sem best. Hvernig haldið þið svo að staðið sé að innflutningi? Það má segja að það hafi verið ein hörmungarsaga frá upphafi, frá því að frelsið hélt innreið sína. Það er örugglega ekki betra heldur en þegar finnsku kart- öflurnar voru fluttar inn á sínum tíma og allt ætlaði að verða vit- laust. Neytendasamtökin söfnuðu undirskriftum til að mótmæla einkasölunni vegna innflutningsins frá Finnlandi Stærsti hlutinn af þessum finnsku kartöflum var fyrsta flokks vara. Eðlilega snerust umræðurnar ekki um góðu kartöfl- urnar. Tilgangurinn var að brjóta niður einkasöluna. Hvort sem það var til góðs fyrir neytendur eða ekki. Vcrð á garðávextum eftir frelsið. DV var einna harðast í áróðrinum gegn Grænmetisverslunni í tíð Jóhanns frá Öxney. Það blað Grœnmetisverslun landbúnaðarins blómstraði í tíð Jóhanns frá Öxney reyndi hvað eftir annað að vekja tortryggni í garð fyrirtækisins. Eitt sinn var gert mikið veður út af því að danskar kartöflur kostuðu eitt- hvað minna í Færeyjum en sams- konar kartöflur fluttar inn frá Dan- mörku kostuðu hér á landi. Þeir hjá DV töldu sig vita að Færeying- ar hefði borgað nokkrum aurum minna fyrir hvert kg. í Danmörku en Grænmetið. Ekki var mér ljóst þá hver tilgangurinn var með þess- um skrifum, nema þá að reyna að læða því inn hjá neytendum að þeir sem stjórnuðu Grænmetinu létu hækka verðið til að hygla sjálfum sér. Auðvitað getur verið munur á innkaupsverði, því verðið er skráð daglega með tilliti til framboðs og eftirspurnar. Þá er ekki sama hvernig kartöflur eru flokkaðar og í hverskonar umbúðum þær eru afgreiddar. Hvar er umhyggjan fyrir neyt- endum nú hjá DV ? Alagning hjá Grænmetinu var um 9 % í tíð Jóhanns,eg gæti trúað að nú væri ekki óalgengt í heildsöl- unni að taka 50 % álagningu og dugar ekki til. Verð á kartöflum í smásölu er frá 80 kr. og upp í 175 kr. fyrir hvert kg. Algengast verð mun vera um 135 kr. á kg. Bændur eiga að fá 52 kr. fyrir hvert kg. af l.flokks kartöflum. Kartöflur hafa hækkað hlutfallslega meira en nokkrar aðrar búvörur. Sama hvernig það er reiknað. Skráð verð á 1. flokks kartöflum í Vestur Evr- ópu komnar í heildverslun hefur verið undanfarnar vikur á bilinu 10 til 15 kr. fyrir hvert kg. Það má gera ráð fyrir að farið verði að flytja inn kartöflur í maí og þótt það verði gamlar kartöflur þá kæmi það mér ekki á óvart þótt verðið yrði svipað og er á íslensk- um kartöflum nú. Eru kartöflur bctri nú cn fyrir5árum? Því var haldið fram af þeim sem vildu frjálsar kartöflur að þegar samkeppni yrði á markaðnum mundi lélegri vara ekki sjást. Út- litsfallegar kartöflur yrði það sem koma skyldi. Sama mundi gilda um aðrar garðávexti og grænmeti. Það má segja að rninna beri á hýðis- skemmdum nú en áður. Phoma- sýking sést varla á kartöflum, sem var algeng hér áður fyrr. Kartöflur voru afgreiddar frá Grænmetis- versluninni í góðu lagi, en eftir örfáa daga í heitum geymslum voru þær orðnar dökkar af phomaskemmd- um. Það sem hefur fyrst og fremst komið veg fyrir þessar skemmdir er að nú á síðari árum eru nær allar kartöflur úðaðar með sveppalyfi, sem drepur sveppi utan á kartöfl- unum. Að öðru leyti eru kartöfl- urnar ekkert betri,það er hugsan- legt að þær séu óhollari nú en áður. Flokkun á kartöflunum er verri nú en áður, því mikið er selt af smælki með stærri kartöflum. Engin breyting hefur verið á framboði kartaflna, það eru nákvæmlega sömu atbrigði og voru fyrir 5 árum. Það er sama grænmetið ,hvorki betra né verra . Neysla á kartöflum 8.APRÍL 1990 Freyr 323

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.